Back to results

University of Iceland

Næring ungbarna. Næring á fyrsta aldursári

Abstract

dc:description.abstract

Næring ungbarna á fyrsta aldursári leggur grunn að þroska þeirra og heilbrigði allt lífið. Hjúkrunarfræðingar eru í lykilaðstöðu til að veita fræðslu um æskilega næringu ungbarna og geta þannig haft áhrif á sjúkdómsbyrði í samfélaginu. Til að hjúkrunarfræðingar geti veitt áreiðanlega fræðslu þurfa þeir að búa yfir þekkingarfræðilegum grunni og viðhalda þekkingu sinni, þar sem stöðugt koma fram nýjar rannsóknir er varða næringu ungbarna. Markmið þessarar fræðilegu samantektar var að taka saman ráðleggingar um næringu ungbarna fyrsta aldursárið og skoða þær í ljósi nýlegra rannsókna. Heimildaleit fór fram á PubMed, Google Scholar og heimasíðu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). WHO ráðleggur að börn séu eingöngu á brjósti fyrstu sex mánuði ævinnar og brjóstagjöf sé haldið áfram í tvö ár eða lengur. Brjóstamjólk eingöngu uppfyllir orku- og næringarþarfir barnsins fyrstu sex mánuði ævinnar, að undanskildu D-vítamíni. Þrátt fyrir að ráðleggingum um gjöf D-vítamíns sé fylgt, benda niðurstöður nýlegra rannsókna til D-vítamínskorts hjá börnum. Er því ástæða til að endurskoða gildandi ráðleggingar. Brjóstamjólkin hefur þá sérstöðu að stuðla að heilbrigðri þarmaflóru, auk þess að innihalda mótefni, stofnfrumur og aðra þætti sem vernda gegn þróun sjúkdóma á lífsleiðinni. Rannsóknir benda til að því lengur sem barnið nærist á brjóstamjólk eingöngu, fram að sex mánaða aldri, því sterkari sé vörnin gegn sýkingum. Brjóstagjöf samhliða fastri fæðu veitir barninu síðan áframhaldandi vörn. Nýjustu rannsóknir benda þó til að gjöf ofnæmisvaldandi fæðutegunda sem fyrst sé árangursríkast í forvörnum gegn ofnæmissjúkdómum. Þetta er í andstöðu við eldri rannsóknir og gildandi íslenskar ráðleggingar. Þegar barn byrjar að fá fasta fæðu er áhersla lögð á næringarríka og járnauðuga fæðu, auk D-vítamín gjafa. Vonast höfundar til að samantekt þessi veiti innsýn í mikilvægi góðrar næringar snemma á lífsleiðinni og hvetji hjúkrunarfræðinga til að veita foreldrum góða fræðslu um næringu ungbarna og stuðla að farsælli og langri brjóstagjöf. Lykilorð: Brjóstagjöf, brjóstamjólk, föst fæða, næring og ungbörn.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Sigrún Inga Gunnarsdóttir 1990-
  • Hafdís Guðnadóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/18494
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/18494

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigrún Inga Gunnarsdóttir 1990-; Hafdís Guðnadóttir 1990-. Næring ungbarna. Næring á fyrsta aldursári. 2014. http://hdl.handle.net/1946/18494