Abstract
dc:description.abstractMarkmið rannsóknarverkefnisins er það að komast að því hvaða áhrif ferðamenn hafa á leigumarkaðinn í Reykjavík. Þar sem rannsóknir virðast vera af skornum skammti á bæði leigumarkaðnum í Reykjavík sem og í ferðaþjónustu hér á landi tekur rannsakandi þann pól í hæðina að setja fram rannsóknarspurninguna; Hver eru áhrif ferðamanna á leigumarkaðinn í Reykjavík? Til þess að fá svör við rannsóknarspurningunni voru meðal annars tekin fimm viðtöl við mismunandi aðila á markaði og einkenndust þessir aðilar af störfum sínum, stöðu eða út frá öðrum hagsmunasjónarmiðum. Aðilar þessir voru valdir í þeim tilgangi að deila þekkingu sinni og reynslu frá mismunandi áttum svo úr fékkst marghliða ádeila. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til nokkurra atriða þar sem áhrif ferðamanna á leigumarkaðinn gætir. Hæst ber að nefna þá auknu eftirspurn sem ferðamenn mynda á leiguíbúðir sem leiðir svo til minnkandi framboðs leiguíbúða á almennum markaði. Hærri tekjumöguleikar myndast fyrir íbúðareigendur og fjölgar íbúðum því stöðugt á þessum markaði á kostnað almenna leigumarkaðsins. Þá virðist sem svo að hækkandi verðlag á leigumarkaði megi að hluta rekja til ásóknar ferðamanna á þennan markað. Einnig má nefna áhrif ferðamanna á miðbæinn en rannsóknin gefur til kynna að sífellt erfiðara verður fyrir borgarbúa að leigja þar vegna þeirrar eftirspurnar sem ferðamenn mynda á svæðinu. Aftur á móti má lesa úr niðurstöðum rannsóknarinnar jákvæð áhrif ferðamanna á markaðinn en með þessari auknu eftirspurn myndast forsendur fyrir því að ráðast í byggingarframkvæmdir sem augljóslega koma sér vel fyrir leigumarkaðinn til lengri tíma.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kristófer Páll Lentz 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/18181
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/18181