Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er staða stjórnsýslu tónlistarkennslu grunn- og tónlistarskóla á Íslandi metin. Markmið verkefnisins er að greina styrkleika og veikleika í stjórnsýslu tónlistarkennslu og skoða hvernig þeir aðilar sem sjá um framkvæmd laganna hafa fylgt eftir ákvæðum þeirra laga sem sett hafa verið um kennslu tónlistar í grunn- og tónlistarskólum. Í ritgerðinni eru lagasetningar og aðalnámsskrár beggja skólastiganna skoðaðar og farið í gegnum allar rannsóknir sem ráðuneytið hefur látið gera á tónlistarkennslu frá 1962. Farið er yfir hvaða aðilar annast upplýsingaöflun um tónlistarkennslu innan stjórnsýslunnar og hvaða upplýsingum þeir safna. Niðurstöður verkefnisins benda til að stjórnsýsla tónlistarkennslu sé þegar á heildina er litið vönduð. Þó megi greina veikleika sem flestir snúa að því að ákvæðum laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985 og laga um grunnskóla nr. 91/2008 er ekki nægjanlega vel fylgt eftir. Sérstaklega skortir á upplýsingasöfnun og eftirlit með framkvæmd þeirra. Einnig veikir það stjórnsýsluna hvað boðvaldsleiðir eru óskýrar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Eggert Björgvinsson 1965-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/17678
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/17678