Back to results

University of Iceland

Félagshæfni barna og ungmenna

Abstract

dc:description.abstract

Í rannsóknarritgerð þessari eru skoðuð áhrif umhverfisins á félagshæfni barna og ungmenna. Félagshæfni er yfirgripsmikið hugtak og felur í sér þroska á ýmsum sviðum, svo sem vitsmuna- og tilfinningaþroska, siðferðiskennd, sjálfsmynd, auk þess að tengjast uppeldi, umhverfi og samfélagsgerð. Þá gegnir félagshæfni veigamiklu hlutverki í lífi barna og ungmenna. Rannsóknir hafa sýnt fram á mikilvægi hæfninnar þegar kemur að vináttu og samþykki á meðal félaga, hún tengist námsgengi, leiðtogahæfileikum og oft á tíðum framtíðarhorfum. Þessi atriði tengjast öll þegar kemur að félagshæfni og geta haft keðjuverkandi áhrif, því til að mynda geta erfiðleikar að eignast vini, skilað sér í skertri aðlögunarhæfni, einmannaleika og námserfiðleikum. Barn sem skortir félagshæfni, sýnir neikvæða félagslega hegðun eða er hafnað af félögum getur orðið fyrir miklum erfiðleikum, bæði í æsku og síðar á lífsleiðinni. Þá verða skoðaðar þær kenningar fræðimanna sem telja umhverfið spila stóran þátt í þroska og félagshæfni barna, sem og mikilvægi samskipta barna við aðra í því samhengi. Þessar kenningar snúast meðal annars um tengsl á milli barns og foreldris, uppeldishætti foreldra og samspil umhverfisþátta. Auk þess þær kenningar sem settar hafa verið fram um þroskaferil barna, þar sem umhverfi og samskipti eru talin gegna lykilhlutverki, þar með talið fyrir félagshæfni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigurlaug Helga Þorleifsdóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/17407
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/17407

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigurlaug Helga Þorleifsdóttir 1990-. Félagshæfni barna og ungmenna. 2014. http://hdl.handle.net/1946/17407