University of Iceland
„Ég er á við hvaða strák sem er.“ Margvíslegar birtingarmyndir strákastelpna í barna- og unglingabókum þriggja alda
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritsmíð er fengist við þróun strákastelpuhlutverksins í barna- og unglingabókum frá 19. öld. Í því skyni er sjónum beint að eftirtöldum persónum bóka sem hafa verið þýddar á íslensku: Kapitola í The Hidden Hand eftir E.D.E.N. Southworth; Jóa March í Little Women eftir Louisa May Alcott; Georgína/Georg í Fimmbókunum eftir Enid Blyton; og ónefnda prinsessan í bókum Per Gustavsson. Georgína er miðdepill athyglinnar og er ítarlegasta greiningin á strákastelpuhlutverkinu í kafla sem er helgaður henni og höfundi hennar, enda er Georgína meginástæða þess að strákastelpur eru rannsóknarefni ritsmíðarinnar. Georgína er í stöðugum átökum við umhverfi sitt, eins og aðrar strákastelpur. Með því að draga átök milli samfélags og strákastelpna fram í dagsljósið er sýnt fram á hvaða mótlæti þær mæta. Þá er því haldið fram að í átökum strákastelpu og samfélags verði til málamiðlun, sem einnig má líta á sem díalektíska þróun, þar sem rammi kvenhlutverksins rýmkar. Ástæða er til að ætla að strákastelpur í bókmenntum eigi að sýna fram á úrelt kynhlutverk og helst útvíkka það svo um munar. Breyting á kynhlutverkum er þó ekki, hvorki í raunverulega heiminum né heimi skáldsögunnar, auðsótt mál.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Bára Magnúsdóttir 1965-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/17132
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/17132