Back to results

University of Iceland

„Þetta er svo gott fólk“ : birting fjölmenningar í íslenskum tónlistarskólum

Abstract

dc:description.abstract

Erlendir tónlistarkennarar hafa verið áberandi á Íslandi allt frá því fyrstu tónlistarskólarnir voru stofnaðir á fyrri hluta 20. aldar. Í dag eru um 25% tónlistarkennara á Íslandi af erlendum uppruna. Rannsóknin sem hér um ræðir snýr að því að skoða birtingarmynd fjölmenningarinnar með áherslu á samskipti og forystu í tónlistarskólum. Rannsóknin er eigindleg og byggir á viðtölum við níu einstaklinga í þremur skólum. Talað var við skólastjóra, erlendan kennara og innlendan kennara í hverjum skóla fyrir sig. Í viðtölunum var rætt um staðalmyndir og fordóma, hópamyndanir, stjórnunarhætti og forystu innan skólanna. Helstu niðurstöður eru þær að kennarar af erlendum uppruna, sem flytja hingað, verða oft utanveltu framan af í samstarfi og samskiptum við bæði samkennara sína og stjórnendur. Á hinn bóginn eru þeir álitnir færari á hljóðfæri og að mörgu leyti virkari þegar kemur að kennslunni sjálfri heldur en íslenskir kennarar. Lítið sem ekkert varð vart við hópamyndanir sem byggja á þjóðerni. Þá kom í ljós að stjórnunarstíll skólastjórnenda virðist hafa mikil áhrif á hversu mikið erlendir kennarar verða utanveltu. Því meiri áhersla á samræður og lýðræðislega stjórnun, því betur eru erlendu kennararnir með í ákvarðanatöku frá upphafi veru sinnar hér og taka meira þátt í skólastarfinu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helgi Þorbjörn Svavarsson 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 9

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16053
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16053

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helgi Þorbjörn Svavarsson 1970-. „Þetta er svo gott fólk“ : birting fjölmenningar í íslenskum tónlistarskólum. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16053