Abstract
dc:description.abstractÍ verkefninu var leitast við að svara tveimur grundvallar spurningum varðandi innleiðingu á viðurkenndu matvælaöryggiskerfi (ISO 22000) hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík: Hvaða þætti í núverandi gæðakerfi sínu þarf Mjólkursamsalan í Reykjavík að bæta til að uppfylla þær kröfur sem ISO 22000 staðallinn setur? Hvaða áhættur fylgja innleiðingu ISO 22000 staðalsins fyrir Mjólkursamsöluna í Reykjavík? Við vinnslu verkefnisins kom í ljós að ástæða var til að leggja upp með eina rannsóknarspurningu í viðbót varðandi viðhorf fyrirtækisins til matvælaöryggiskerfa almennt. Var þeim þætti hinsvegar líka gerð skil í verkefninu. Til að svara þessum spurningum var fyrst og fremst stuðst við ISO 22000 staðalinn, gæðahandbók MS Reykjavík, viðtöl við gæða- og umhverfisstjórafyrirtækisins og fræðigreinar. Niðurstaða verkefnisins er sú að það gæðakerfi sem Mjólkursamsalan í Reykjavík styðst við í dag nær til ýmsra þeirra krafna sem ISO 22000 staðallinn setur þó með óskipulögðum hætti. Fyrirtækið þarf því að aðlaga núverandi gæðakerfi sitt að þeim kröfum sem staðallinn setur. Aðlaga ber staðalinn eftir kaflaskiptingu hans og miðast uppbygging á niðurstöðum verkefnisins í heild sinni eftir því. Í verkefninu er gert skil á þáttum sem mælt er með að fyrirtækið fylgi svo innleiðingar- og aðlögunarferlið á staðlinum gangi sem auðveldast fyrir sig. Áhættuþættir við innleiðingu á ISO 22000 staðlinum miðað við starfsemi fyrirtækisins eru í samræmi við þá áhættuþætti sem fram hafa komið í rannsóknum tengdum innleiðingu á ISO stöðlum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Gunnar Freyr Þórisson 1985-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/15605
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/15605