Abstract
dc:description.abstractNýbúum á Íslandi hefur fjölgað undanfarin ár og voru 25.926 í byrjun árs 2013. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu og réttindi sjúklinga eiga allir landsmenn rétt á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem heilbrigðiskerfi eru fær um að veita hverju sinni. Íslenskar og erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á að ekki búa allir þjóðfélagshópar við sama heilsufar. Rannsóknir gefa vísbendingar um að heilsu nýbúa fari hrakandi frá upphafi búsetu í Bandaríkjunum og Kanada. Tilgangur þessarar fræðilegu úttektar er að kanna ójafnræði til heilbrigðis og þá þætti sem skerða aðgengi nýbúa að upplýsingum og þjónustu. Upplýsinga var aflað úr rannsóknum á viðurkenndum gagnagrunnum og úr opinberum gögnum. Niðurstöður sýna að skert heilsulæsi er ein helsta orsök ójafnræðis í heilsufari nýbúa, meðal annars vegna tungumálaörðugleika og skertrar aðlögunar að nýju heilbrigðiskerfi. Hjúkrunarfræðingar eru í góðri stöðu til að greina skert heilsulæsi skjólstæðinga sinna og veita persónumiðaða fræðslu sem byggir á mati á menningarlegum bakrunni og þörfum nýbúa fyrir leiðsögn og stuðning í nýju heilbrigðiskerfi. Bætt heilsulæsi leiðir til aukins aðgengis að upplýsingum og þjónustu og getur minnkað ójafnræði í heilsufari. Niðurstöður varpa ljósi á mikilvægi þess að hjúkrunarfræðingar hljóti þjálfun í menningarhæfri hjúkrun og mati á heilsulæsi skjólstæðinga sinna. Lykilhugtök: Nýbúar, ójafnræði í heilsufari, heilsulæsi, menningarhæfni, hjúkrun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigríður Guðrún Elíasdóttir 1989-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/15289
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/15289