Abstract
dc:description.abstractLunga mannsins er mjög flókið líffæri sem er samansett af pípulaga líffærakerfi sem tengist andrúmsloftinu í gegnum öndunarveginn. Í lunganu eiga sér stað loftskipti á súrefni og koltvíoxíði og þarf lungað því að hafa vel skipulagt ónæmiskerfi. Þegar lofti er andað inn í lungun fylgja mikið magn af utanaðkomandi örverum sem þarf að útrýma. Í þessarri rannsókn var návist örverudrepandi peptíðsins LL-37 í lungnavef og í lungnastofnfrumulínunni VA10 staðfest og tjáning LL-37 var betur skoðuð. Í ljós kom að LL-37 var tjáð á topplægum hluta þekjufrumna berkjunga, en þekjufrumur lungnablaðranna sýndu enga tjáningu. Þegar VA10 frumulínan var samræktuð með mónócýtum og fibroblöstum virtist tjáningin á LL-37 ekki aukast, en þegar frumurnar voru ræktaðar með IL-13 og IL-4, sem eru hlutar af áunna ónæmiskerfinu, minnkaði tjáningin á LL-37 töluvert. Þessi interleukin höfðu þó önnur áhrif á VA10 stofnfrumulínuna. Þegar frumurnar voru litaðar fyrir mucin kom í ljós að VA10 frumurnar geta sérhæft sig í bikarfrumur þegar þær voru örvaðar með bæði IL-13 og IL-4.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Harpa Káradóttir 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- en
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/15089
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/15089