Back to results

University of Iceland

„Þau höfðu trú á mér...þá gat ég líka haft trú á mér.“ Afdrif og árangur fyrrum nemenda Námskrafts Námsflokka Reykjavíkur

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvernig þróunarverkefnið Námskraftur hefur nýst nemendum þegar til lengri tíma er litið, einu til tveimur árum eftir að þeir luku námi. Markmiðið var að kanna hvort og þá hvernig námið og inngrip náms- og starfsráðgjafar, hafi nýst nemendum. Einnig að kanna námsstöðu þeirra, hvort Námskraftur hafi hjálpað þeim að komast áfram í nám og auka trú þeirra á eigin getu, í ljósi þess að meginmarkmið Námskrafts er að styrkja nemendur til þess að nýta sér nám í framhaldsskólum og bera ábyrgð á eigin námi. Að auki var markmiðið að kanna námssögu og bakgrunn nemendanna. Niðurstöður rannsóknarinnar leiða í ljós mikla ánægju með Námskraft og að þróunarverkefnið nái settum markmiðum. Niðurstöður sýndu að allir þátttakendur þessarar rannsóknar stunda nám í framhaldsskóla einu til tveimur árum eftir að þeir luku Námksrafti. Jafnframt hefur trú þeirra á eigin getu og færni aukist, bæði í námi og lífi, sem bendir til þess að Námskraftur sé að sinna tilætluðu hlutverki sínu. Vonast er til að niðurstöður rannsóknarinnar nýtist stjórnendum Námsflokka Reykjavíkur í stefnumótandi vinnu í Námskrafti. Einnig að úrræði, sem hjálpa viðkvæmum nemendahópi að styrkjast, verði efld til muna þar sem hátt hlutfall hverfur brott úr framhaldsskólum á Íslandi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Arnbjörg Ösp Matthíasdóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14978
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14978

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Arnbjörg Ösp Matthíasdóttir 1979-. „Þau höfðu trú á mér...þá gat ég líka haft trú á mér.“ Afdrif og árangur fyrrum nemenda Námskrafts Námsflokka Reykjavíkur. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14978