Back to results

University of Iceland

Kröfur um athafnaskyldu fasteignareigenda þegar tjón verður vegna hálku eða bleytu við opinberar byggingar

Abstract

dc:description.abstract

Lengst af hefur verið talið að ekki hvíli sérlega rík athafnaskylda á eigendum opinberra bygginga að gera ráðstafanir til að hindra slys vegna hálku og bleytu á fasteigninni. Efni þessarar ritgerðar snýr að því að kanna hvort af nýlegri dómaframkvæmd Hæstaréttar megi ráða að sakarmat réttarins í málum af þessu tagi hafi breyst. Í ritgerðinni eru reifaðir tveir nýlegir Hæstaréttardómar, Hrd. 17. nóvember 2005 (251/2005) og Hrd. 31. maí 2007 (635/2006), þar sem skaðabótaskylda var felld á eiganda opinberrar byggingar vegna líkamstjóns sem rakið var til hálku/bleytu á fasteigninni. Til samanburðar er fjallað um tvo eldri dóma í sambærilegum málum, Hrd. 1999, bls. 4700 (276/1999) og Hrd. 2003, bls. 3163 (41/2003), þar sem sýknað var af skaðabótaskyldu. Könnuð eru málsatvik og málsástæður aðila í þessum fjórum málum og greindar röksemdir og niðurstaða dómsins í hverju máli fyrir sig. Þannig er skoðað hvort af þessum nýlegu dómum megi ráða að sakarmat Hæstaréttar í málum sem varða tjón vegna hálku eða bleytu við opinberar byggingar sé orðið strangara en fyrr - og athafnaskylda fasteignareigenda hvað varðar ráðstafanir til að koma í veg fyrir slík tjón þar með ríkari. Til stuðnings við þessa umfjöllun er í upphafi almennt rætt um athafnaleysi sem grundvöll skaðabótaábyrgðar og um þær réttarheimildir sem ábyrgð fasteignareiganda á tjónum af þessu tagi byggir á. Einnig er skoðað hvaða kröfur Hæstiréttur hefur gert um athafnaskyldu fasteignareiganda þegar um ræðir annars konar húsnæði en opinberar byggingar. Að lokum er velt upp helstu rökum með og á móti ströngu sakarmati í slíkum málum og tekið til umhugsunar hvort einhver rök standi til þess að misstrangar kröfur séu gerðar til fasteignareigenda eftir því hvers konar starfsemi er rekin í húsnæðinu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigrún Ísleifsdóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14438
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14438

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigrún Ísleifsdóttir 1985-. Kröfur um athafnaskyldu fasteignareigenda þegar tjón verður vegna hálku eða bleytu við opinberar byggingar. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14438