University of Iceland
Hvað þarf til að skila góðri frammistöðu í starfi? Öfl sem knýja einstaklinginn áfram til árangurs og velgengni
Abstract
dc:description.abstractMegintilgangur ritgerðarinnar er að leita svara við spurningunum: Hvað er vel unnið starf (e. good work?) – er til algild skilgreining á því? Hvert er markmiðið með starfi okkar og hver er tilgangur þess? Hvaða drífandi öfl knýja okkur áfram og leiða okkur á toppinn til framúrskarandi árangurs og velgengni í starfi? Rýnt er í fræðilegar heimildir og kenningar síðasta áratugar og jafnframt kynnt þau tól og tæki sem notast er við til að skilgreina þætti sem hafa áhrif á framúrskarandi árangur óháð starfsstéttum. Markmið rannsóknarinnar er að kanna með eigindlegri viðtalsaðferð hvort hægt er að koma auga á þá lykilþætti sem taldir eru upp í fræðilega kaflanum árangursríka einstaklinga sem hafa hlotið viðurkenningu fyrir framúrskarandi framisstöðu við að skila góðu starfi (e. good work). Til að leita svara við síðari spurningunni voru tekin viðtöl við tiú einstaklinga sem eiga það sameiginlegt að hafa hlotið einhvers konar viðurkenninga á sínum starfsvettvangi fyrir vel unnið starf. Leitast er við að fá góða innsýn í það krefjandi ferli sem átti sér stað til að ná slíkum árangri. Síðan eru birtar niðurstöður og reynt að koma auga á, og ályktanir dregnar af því, hvort um sé að ræða keimlíkt mynstur í hugsunarhætti og hegðun í starfi. Ráðandi gildi í svörum viðmælenda eru borin saman við kenningar og leitast er við að sjá sameiginlega grundvallarþætti með því að gera samanburð. Jafnframt er ætlunin að draga lærdóm af þeim reynslubanka sem er að finna í svörum viðmælenda og gera tilraun til að setja saman leiðarvísi að þeim aðalatriðum sem hafa skipað stærstan sess í þeirra ferðalagi; ferðalagi sem einkennist af því að vinna af ástríðu. Niðurstöðurnar benda til þess að viðmælendur nái góðri frammistöðu sem byggist á siðferðislegum innri gildum þeirra, settum markmiðum og þrá eftir að finna sinn æðri tilgang. Fræðileg yfirferð bendir til mikillar samsvörunar á milli viðmælenda þegar kemur að þeim eiginleikum sem þurfa að vera fyrir hendi til að geta skilað góðu verki. Lykilorð: starf, gildi, frammistaða, tilgangur, hvatar og flæði.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Inga Lísa Sólonsdóttir 1980-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/10429
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/10429