Abstract
dc:description.abstractFrost-þíðu skemmdir í steinsteypu eru að öllum líkindum sá þáttur sem hefur hvað mest áhrif á endingu bygginga á Íslandi. Utanhússteypa á Íslandi þarf að standast kröfur um að flögnun sé ekki meiri en 1 kg/m2 samkvæmt stöðluðu sænsku frostþols prófi, SS 137244. Til að uppfylla þessar kröfur er loft-blendi bætt út í steypublönduna, en gallinn er sá að við það minnkar þrýstiþolið töluvert, eða 5 prósent fyrir hvert prósent lofts í steypunni. Tilgangur þessa verkefnis er að hanna endingagóða steypu án loft-blendis, þ.e.a.s. endingargóða með tillit til frostþols og klórleiðni. Íslensk fylliefni voru notuð í þessu verkefni. Steypu blöndurnar voru að mestu hannaðar sem venjulegar titraðar steypur (CVC) þó með undantekningu í einni sýnaröð sem var hönnuð sem sjálfútleggjandi steypa (SCC). Blöndurnar höfðu mismunandi vatns/sements hlutfall, í nokkrum þrepum frá 0,42 niður í 0,26. Magn kísilryks var einnig breytilegt, 0% (án kísilryks), 6% og 12% kísilryk (af sementsmagni) þar sem sementsmagnið var minnkað í sama hlutfalli. Þau endingarpróf sem notast var við voru frost/þíðu próf samkvæmt CEN/TR 15177 staðli, klórleiðni próf samkvæmt Nordtest prófi NT BUILD 492, og staðlað þrýstiþols próf. ConTec seigjumælir og Rheometer-4SCC voru notaðir ásamt sigmáli og sigmálsflæði-mælingu til þess að mæla flotfræði-eiginleika steypanna. Niðurstöðurnar sýndu að hægt er að hanna endingagóða steypu án loft-blendis, en vatns/bindiefnis hlutfallið til þess að tryggja endingu er misjafnt eftir fylliefnum og hlutfalli kísilryks af bindiefnum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Þórður Ingimar Kristjánsson 1974-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 9Rights
- Language dc:language.iso
- en, is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/9903
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/9903