Back to results

Reykjavík University

Durability of non air entrained concrete

Abstract

dc:description.abstract

Frost-þíðu skemmdir í steinsteypu eru að öllum líkindum sá þáttur sem hefur hvað mest áhrif á endingu bygginga á Íslandi. Utanhússteypa á Íslandi þarf að standast kröfur um að flögnun sé ekki meiri en 1 kg/m2 samkvæmt stöðluðu sænsku frostþols prófi, SS 137244. Til að uppfylla þessar kröfur er loft-blendi bætt út í steypublönduna, en gallinn er sá að við það minnkar þrýstiþolið töluvert, eða 5 prósent fyrir hvert prósent lofts í steypunni. Tilgangur þessa verkefnis er að hanna endingagóða steypu án loft-blendis, þ.e.a.s. endingargóða með tillit til frostþols og klórleiðni. Íslensk fylliefni voru notuð í þessu verkefni. Steypu blöndurnar voru að mestu hannaðar sem venjulegar titraðar steypur (CVC) þó með undantekningu í einni sýnaröð sem var hönnuð sem sjálfútleggjandi steypa (SCC). Blöndurnar höfðu mismunandi vatns/sements hlutfall, í nokkrum þrepum frá 0,42 niður í 0,26. Magn kísilryks var einnig breytilegt, 0% (án kísilryks), 6% og 12% kísilryk (af sementsmagni) þar sem sementsmagnið var minnkað í sama hlutfalli. Þau endingarpróf sem notast var við voru frost/þíðu próf samkvæmt CEN/TR 15177 staðli, klórleiðni próf samkvæmt Nordtest prófi NT BUILD 492, og staðlað þrýstiþols próf. ConTec seigjumælir og Rheometer-4SCC voru notaðir ásamt sigmáli og sigmálsflæði-mælingu til þess að mæla flotfræði-eiginleika steypanna. Niðurstöðurnar sýndu að hægt er að hanna endingagóða steypu án loft-blendis, en vatns/bindiefnis hlutfallið til þess að tryggja endingu er misjafnt eftir fylliefnum og hlutfalli kísilryks af bindiefnum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þórður Ingimar Kristjánsson 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 9

Rights

Language dc:language.iso
en, is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9903
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9903

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þórður Ingimar Kristjánsson 1974-. Durability of non air entrained concrete. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9903