Abstract
dc:description.abstractEldri byggingar fullnægja í mörgum tilvikum ekki kröfum gildandi staðla auk þess sem mögulegt er að burðarkerfi þeirra hefur orðið fyrir skemmdum. Ýmsar ástæður geta verið fyrir þessu, m.a. öldrun, hrörnun vegna veðrunaráhrifa, aukið álag vegna breyttrar notkunar, skemmdir vegna óhappaálágs eða hönnunin stenst einfaldlega ekki nútíma hönnunarkröfur eins og til dæmis á jarðskjálftasvæðum. Til að lágmarka hættu á hruni eldri bygginga er því mikilvægt að styrkja viðkvæmustu hluta hennar. Megin markmið þessa verkefnis er að rannsaka styrktar súlur undir lóðréttu álagi. Súlurnar eru styrktar með trefjastyrktu epoxý efni (FRP) með basalttrefjum (BFRP) og niðurstöður prófana bornar saman við útreikninga samkvæmt leiðbeinandi hönnunarstöðlum fyrir FRP efni í steyptum mannvirkjum. Basalttrefjar er nýtt efni á sviði mannvirkjahönnunar sem ekki hefur verið tekið fyrir í stöðlum. Í formi trefjamotta er þeim vafið umhverfis súlur og þær þannig gerðar bendiluktar. Átján sívalningssýni og sex járnbentar ferhyrndar súlur, bendiluktar með mismunandi fjölda laga af basalttrefjamottum voru prófaðar til þess að rannsaka virkni mottanna á steyptum byggingahlutum. Óstyrkt sýni voru einnig prófuð til samanburðar. Ferhyrndu súlurnar voru rúnnaðar á hornum til þess að skoða áhrif þversniðslögunar á bendilukta styrkinn. Togþolspróf voru gerð á basaltmottunum til þess að meta togstreitu og togþol efnisins. Hönnunarstaðlar sem taka á bendiluktum súlum með FRP efnum voru kynntir og farið í gegnum mismunandi reikniaðferðir. Niðurstöður tilrauna voru að lokum bornar saman við útreiknaðar styrktaraukningar. Niðurstöður tilrauna sýna að með því að vefja basalttrefjamottum um súlur má auka burðareiginleika steyptra súlna gagnvart lóðréttu álagi. Þeir staðlar sem skoðaðir voru áætla aukið þrýstiþol með viðunandi nákvæmni, það á hinsvegar ekki við um útreikninga á auknu streituþoli þar sem dreifnin var nokkuð meiri. Lækkun togstreitu í basalttrefjamottum um 60% virðist vera raunhæf í hönnun á steyptum súlum styrktum með slíkum mottum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Arngrímur Konráðsson 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 8Rights
- Language dc:language.iso
- en
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/9902
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/9902