Back to results

Reykjavík University

Hvað getur hið opinbera gert til að gera kaup á rafmagnsbílum að raunhæfum valkosti fyrir almenning?

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessarar ritgerðar er rafmagnsbíllinn, hversu fýsilegur kostur það er fyrir ríkið og almenning að hefja innleiðingu á honum og hvaða hindranir kunna að vera í vegi fyrir því að hanni nái útbreiðslu hér á landi. Gerð var könnun á viðhorfi fólks til rafmagnsbílsins og hvað það er, sem kann að ráða ákvörðunum um kaup. Skoðaðir voru hvatar, sem yfirvöld í öðrum löndum nota þess til að ýta undir kaup á rafmagnsbílum, og íhugað, hvort yfirvöld hér á landi eigi að leggja enn frekari áherslu á að hraða innleiðingu rafmagnsbílsins með það fyrir augum að draga úr mengun og ýta undir jákvæðan vöruskiptajöfnuð. Helstu niðurstöður eru að rafmagnsbílar eru of dýrir í dag og helgast það fyrst og fremst af því, að verð liþíumrafhlöðunnar er enn of hátt til þess að rafmagnsbíllinn geti talist raunhæfur valkostur fyrir almenning. Sú þróun, sem kemur fram í spám sérfræðinga um verðþróun á liþíumrafhlöðunni, gefur tilefni til bjartsýni. Metanbíllinn og tengiltvinnbíll eru þeir bílar, sem munu brúa bilið þar til rafhlöðuframleiðendur koma fram með rafhlöðu, sem er á lægra verði og með ásættanlegri geymslugetu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Gunnar Steingrímsson 1979-
  • Kristján Helgi Theodórsson 1967-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9788
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9788

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gunnar Steingrímsson 1979-; Kristján Helgi Theodórsson 1967-. Hvað getur hið opinbera gert til að gera kaup á rafmagnsbílum að raunhæfum valkosti fyrir almenning?. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9788