Abstract
dc:description.abstractGreiðsluaðlögun einstaklinga og ábyrgðarmenn Greiðsluaðlögun einstaklinga og staða ábyrgðarmanna innan úrræðisins er aðalumfjöllunarefni þessarar ritgerðar. Verður meðal annars vikið að hraðri þróun greiðsluaðlögunar, hér á landi, sem hófst með innleiðingu laga um breytingu á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991 (greiðsluaðlögun), nr. 24/2009. Var þá í fyrsta sinn lögfest ákvæði sem heimilaði einstaklingum í greiðsluerfiðleikum að leita til dómstóla með beiðni um nauðasamninga til greiðsluaðlögunar. Með tímanum komu þó ákveðnir brestir í ljóst á þeirri löggjöf og voru í kjölfarið innleidd lög nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga. Taka þau lög aðallega til greiðsluaðlögunar með beitingu frjálsra samninga milli kröfuhafa og skuldara en þó er áfram, undir ákveðnum kringumstæðum, hægt leggja fram beiðni um nauðasamninga til greiðsluaðlögunar eftir ákvæðum gjaldþrotalaganna. Á sama tímabili voru einnig innleidd lög um ábyrgðarmenn nr. 32/2009 sem áttu að styrka réttarstöðu ábyrgðarmanna. Í 3. mgr. 9. gr. laganna var þó sérstaklega vikið að stöðu ábyrgðarmanna við nauðasamninga til greiðsluaðlögunar. Kvað ákvæðið á um að nauðasamningur eða önnur eftirgjöf, þ.m.t. nauðasamningur til greiðsluaðlögunar til handa aðalskuldara, bæri að hafa sömu áhrif til lækkunar kröfu á hendur ábyrgðarmanni. Þá var auk þess kveðið á um að ákvæðið skylda vera afturvirkt þar sem vilji manna var að leysa úr þeim ábyrgðarskuldbindingum sem myndu falla á menn í kjölfar efnahagshrunsins, sbr. 12. gr laganna. Í Hrd. 274/2010 komst Hæstiréttur þó að þeirri niðurstöðu að með ákvæðinu væri verið að brjóta á stjórnarskrárvörðum eignarrétti kröfuhafa og ákvæðið dæmt ógilt. Var staða ábyrgðarmanna því aftur orðin óljós í tengslum við greiðsluaðlögun og er enn. Í framhaldinu verður svo fjallað um beitingu laga um greiðsluaðlögun einstaklinga og sérstaklega fjallað um framkvæmd frjálsra samninga og stöðu ábyrgðarmanna. Að lokum verða mögulegar lausnir og úrbætur sérstakt umfjöllunarefni og leitað verður úr fyrir landssteinana eftir mögulegum lausnum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jóhanna Klara Stefánsdóttir 1984-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/9375
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/9375