Back to results

Reykjavík University

Skuldavafningar í innlendu og alþjóðlegu samhengi

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar ritgerðar er að benda á ástæður þess að markaðsverð skulda-vafninga endurspeglaðist ekki í raunveruleikanum, líkt og efnahagskreppan árið 2008 leiddi í ljós. Það er gert með því að skilgreina hugtakið skuldavafningur og lýsa þeirri aðferð sem kallast verðbréfun og er notuð til að búa til skuldavafninga. Þróun skuldavafninga verður sett í sögulegt samhengi til að varpa ljósi á hvernig þeir urðu til, hvers vegna og hvaða afleiðingar þeir höfðu á efnahgskerfið árið 2008. Þar sem ekki eru sérlög hér á landi um skuldavafninga þá snertir útgáfa þeirra fjölmörg réttarsvið. Fjallað verður um ákvæði laga sem við koma útgáfu skuldavafninga og alþjóðlegar reglur sem hafa verið settar um útgáfu þeirra. Enn fremur verður sett fram greining á áhættu af skuldavafningum og hvernig sé hægt að draga úr henni. Matsfyrirtækin spila stórt hlutverk við útgáfu skuldavafninga en þau gefa skulda-vafningum einkunn sem fjárfestar nota til að bera skuldavafninga saman við aðra fjárfestingarmöguleika. Matsfyrirtæki verða því að tryggja eins og unnt er að einkunnir þeirra endurspeglist í reunverulegu verðmæti skuldavafninga. Þá reynir á að matsfyrirtækin séu meðvituð um eiginleika skuldavafninga, áhættuna sem stafar af þeim og hvort útgáfa þeirra sé í samræmi við lög. Fjallað verður um starfsemi matsfyrirtækja, aðferðirnar sem þau nota til að framkvæma lánshæfis-mat skuldavafninga og lagaumhverfið sem þau starfa í. Að lokum verður fjallað um framtíð skuldavafninga og hvernig bregðast þurfi við göllum skuldavafninga, sem komu svo skýrt fram í efnahagskreppunni 2008, þannig að framtíð þeirra verði lífleg.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigríður Dís Guðjónsdóttir
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9314
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9314

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigríður Dís Guðjónsdóttir. Skuldavafningar í innlendu og alþjóðlegu samhengi. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9314