Back to results

Reykjavík University

Alþjóðleg skattlagning íþrótta og listamanna

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur ritgerðarinnar er að gera grein fyrir reglum 17. gr. samningsfyrirmyndar OECD sem fjallar um skattlagningu á tekjur íþrótta- og listamanna sem þeir afla annarstaðar en í sínu heimaríki. Ásamt því er gerð athugun á hvort ákvæði íslensku tekjuskattaslaganna nr. 90/2003 sem gilda um skattlagningu á tekjur erlendra íþrótta- og listamanna hér á landi brjóti gegn þjóðaréttarlegri skuldbindingu íslenska ríkisins gagnvart samningnum um Evrópska Efnahagssvæðið. Í upphafi ritgerðar er gert grein fyrir tilgangi tvísköttunarsamninga og stöðu þeirra í íslenska réttarkerfinu þar sem höfundur kemst að þeirri niðurstöðu að stjórnsýsluvenja hefur skapast um beitingu þeirra sem fer hinsvegar í skjön við ótvíræð ákvæði stjórnaskrár þar sem tvísköttunarsamningar hafa ekki lagagildi hér á landi. Þar á eftir er stutt umfjöllun um sögu og þróun ákvæða 17. gr. samningsfyrirmyndar OECD og þeirri reglu sem kallast upprunareglan sem gerir það verkum að heimaríki skattaðila þarf að gefa eftir rétt sinn til skattlagningar til þess ríkis sem tekjur eiga sér uppruna. Í kjölfarið er athugað hvaða einstaklingar falla undir hugtökin íþrótta- og listamaður og hvers eðlis tekjur þeirra þurfa að vera til þess falla undir gildissvið 17. gr. Þá eru gegnsæisreglum sem finna má í 17. gr. samningsfyrirmyndar OECD sérstaklega gerð skil. Helstu niðurstöður varðandi reglur 17. gr. samningsfyrirmyndar OECD leiddu í ljós að núverandi fyrirkomulag hennar bitnar mest á tekjulægri íþrótta- og listamönnum en lagðar voru fram lausnir á því vandamáli. Þá kom einnig í ljós að athugasemdir með greininni þarf að betrumbæta þar sem þær eru óskýrar á köflum. Í ákvæðum tekjuskattslaga nr. 90/2003 sem gilda um skattlagningu erlendra íþrótta- og listamanna kemur fram að reikna skal tekjuskatt af heildartekjum þeirra hér á landi án nokkurs frádráttar. Niðurstöður ritgerðar benda til þess að slík skattlagning geti brotið gegn þjóðaréttarlegri skuldbindingu íslenska ríkisins gagnvart samningnum um Evrópska Efnahagssvæðið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristinn Jónasson 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9313
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9313

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristinn Jónasson 1984-. Alþjóðleg skattlagning íþrótta og listamanna. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9313