Back to results

Reykjavík University

Hlutlæg og huglæg skilyrði fjársvika skv. 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerðinni er að finna umfjöllun um hlutlæg og huglæg skilyrði fjársvika skv. 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og mörk fjársvika gagnvart öðrum ákvæðum laganna. Í ritgerðinni verður reynt að setja upp heildarmynd af fjársvikaákvæðinu. Byrjað verður á því að skoða hvaða skilyrði felast í hlutlægum skilyrðum fjársvika. Skilyrðin eru dregin af ákvæðinu sjálfu en hlutlæg skilyrði eru þau skilyrði refsiábyrgðar sem gera kröfu um háttsemi sem lýst er refsiverð eftir lagaákvæði. Til þess að hin hlutlægu skilyrði fjársvika séu uppfyllt þarf háttsemi í fyrsta lagi að vera tvíhliða, þ.e. krafist er atbeina þess sem misgert er við. Í öðru lagi þarf háttsemin að vera ólögmæt, en ólögmætiskrafan er tekin sérstaklega fram í fjársvikaákvæðinu. Í þriðja lagi þarf gerandi að hafa beitt blekkingu við framkvæmd brotsins með því að vekja, styrkja eða hagnýta sér ranga eða óljósa hugmynd annars manns, þ.e. villa þarf að hafa verið til staðar. Í fjórða lagi er gerð krafa um orsakatengsl milli villunnar og athafna, eftir atvikum athafnaleysi, brotaþola, þ.e. það verður að vera hægt að rekja háttsemi brotaþola til geranda eftir viðurkenndum rökleiðum. Í fimmta lagi þarf brot að beinast að verðmætum í eigu annars manns. Í ritgerðinni verður farið ítarlega í hvert og eitt þessara skilyrða og þau útskýrð nánar með vísan til dóma og fræðirita. Að lokinni umfjöllun um hlutlæg skilyrði fjársvika verður vikið að hinum huglægu skilyrðum fjársvika, þ.e. huglægri afstöðu brotamanns til hinnar hlutlægu hegðunar. Huglægu skilyrði fjársvika er ásetningur til verknaðar skv. 18. gr. hgl. auk þess að ásetningur þarf einnig að hafa verið til auðgunar skv. 243. gr. hgl. Loks verður vikið að því að skoða hver séu mörk fjársvika gagnvart umboðssvikum, fjárdrætti, þjófnaði og skjalafalsi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigríður Svava Sigurgeirsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9306
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9306

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigríður Svava Sigurgeirsdóttir 1984-. Hlutlæg og huglæg skilyrði fjársvika skv. 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9306