Reykjavík University
Skilyrði í samrunamálum og önnur úrræði til verndar virkri samkeppni
Abstract
dc:description.abstractRannsóknarefni ritgerðarinnar eru þær heimildir sem samkeppnisyfirvöld hafa til að setja skilyrði og fyrirmæli til verndar virkri samkeppni. Gerð er grein fyrir heimildum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins til að grípa til úrræða og eru þær heimildir bornar saman við úrræði íslenskra samkeppnisyfirvalda. Meginefni ritgerðarinnar er könnun á því hvers konar skilyrði hafa verið talin duga í framkvæmd til að vernda virka samkeppni og hefur höfundur sett fram greiningu á skilyrðum í samrunamálum. Sérstaklega er fjallað um mál sem lúta að yfirtökum fjármálastofnana á fyrirtækjum en þeim hefur fjölgað gríðarlega frá efnahagshruninu árið 2008. Þá er fjallað um úrræði sem samkeppnisyfirvöld hafa til þess að setja skilyrði eða fyrirmæli í öðrum málum, svo sem heimild til þess að kveða á um fjárhagslegan aðskilnað og skilyrði sem sett hafa verið þegar veittar eru undanþágur frá bannreglum samkeppnislaga. Samkeppnisyfirvöld hafa einnig heimild til þess að grípa til úrræða til breytinga á skipulagi og atferli þegar um er að ræða brot á bannreglum samkeppnislaga og er fjallað um þau skilyrði sem sett hafa verið í þeim málaflokki. Að lokum er gerð grein fyrir nýjustu breytingu á samkeppnislögum sem samþykkt var með lögum nr. 14/2011. Helstu niðurstöður af flokkun skilyrðanna eru þær að í samrunamálum virðist vera tilhneiging af hálfu samkeppnisyfirvalda til þess að beita atferlisskilyrðum í meira mæli en framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur gert, en þar er byggt á því að skipulagsbreytingar henti betur til leiðréttingar á skaðlegum áhrifum samruna á samkeppni. Skilyrði sem lúta að atferlisbreytingum eru einnig algengari en skipulagsbreytingar þegar kemur að íhlutun vegna brota á bannreglum samkeppnislaga. Mikilvægt er að skilyrði séu sniðin að aðstæðum hverju sinni og að orðalag þeirra sé með þeim hætti að þau verndi í raun virka samkeppni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Lilja Bjarnadóttir 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/9289
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/9289