Back to results

Reykjavík University

Útileikjanámskeiðið ,,Komdu út að leika". Kærkomin leið til að auka hreyfingu og útivist hjá börnum

Abstract

dc:description.abstract

Ótal rannsóknir hafa verið gerðar á ávinningi af hreyfingu og útiveru/útivist. Niðurstöður rannsókna sýna að líkamleg hreyfing er nauðsynleg fyrir vöxt og þroska barna. Börnum er ráðlagt að stunda hreyfingu í að minnsta kosti 60 mínútur á dag. Töluverður fjöldi barna nær ekki því lágmarki og því ber að auka hreyfingu þeirra. Markmið verkefnisins er að finna leið til að stuðla að aukinni hreyfingu og útivist barna og bæta þannig líkamlega, andlega og félagslega heilsu þeirra. Með það að leiðarljósi var hannað útileikjanámskeið sem ber heitið ,,Komdu út að leika” og er það ætlað fyrir börn á grunnskólaaldri. Hönnuð var handbók fyrir þjálfara sem leiðarvísir fyrir námskeiðið. Í henni kemur fram hvernig námskeiðinu er háttað og hvað þjálfurum ber að hafa í huga varðandi þjálfun barna. Námskeiðið fer fram utandyra einu sinni í viku á skólalóð barnanna og í umhverfi skólans. Þar gefst börnum tækifæri til að læra á umhverfi sitt, þjálfa sig á sama tíma og þau leika sér. Í hverjum tíma er miðlað fróðleik varðandi heilbrigða lífshætti og börnin hvött til að spyrja hvert eftir öðru og leika sér sjálf úti fyrir utan skipulögðu tímana. Hluti af námskeiðinu var haldinn fyrir 40 börn í grunnskóla og var almenn ánægja meðal barnanna og kennara þeirra sem fylgdust með þjálfuninni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Selma Birna Úlfarsdóttir 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9241
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9241

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Selma Birna Úlfarsdóttir 1986-. Útileikjanámskeiðið ,,Komdu út að leika". Kærkomin leið til að auka hreyfingu og útivist hjá börnum. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9241