Back to results

Reykjavík University

Áhrif þátttöku kvenna í Fitness á andlega og líkamlega heilsu þeirra

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessarar eigindlegu og megindlegu rannsóknar voru kvenkyns þátttakendur í Fitness. Markmið hennar var að kanna líkamleg og andleg áhrif undirbúnings og þátttöku kvenna í Fitnesskeppni. Til þess var skoðað orkuinnihald mataráætlana keppenda, æfingamagn þeirra sem og andlega og líkamlega heilsu fyrir og eftir keppni. Rannsóknin skiptist í þrjá hluta: megindlega rannsókn á kvenkyns keppendum á Íslandsmótinu í Fitness 2011, bæði fyrir og eftir keppni; eigindlega rannsókn á konum er höfðu reynslu af þátttöku í sambærilegum keppnum og að lokum megindlega rannsókn á áliti almennings á Fitness. Rannsóknin fór fram á tímabilinu 1. – 30. apríl 2011. Niðurstöður hennar sýndu að andlegir og líkamlegir kvillar á borð við átraskanir og tíðahringsröskun eru mjög algengir meðal kvenkyns þátttakenda í Fitnesskeppnum. Við athugun á orkuinnihaldi mataræðis Fitnesskeppenda kemur í ljós að það er langt undir þeim ráðleggingum sem Lýðheilsustöð og American Dietetics Association leggja til miðað við það magn æfinga sem keppendur leysa af hendi. Útlit er fyrir að notkun ólöglegra lyfja á borð við stera sé einnig töluvert algeng meðal kvenkyns keppenda í Fitness. Samkvæmt niðurstöðum er ljóst að fræðsla til keppenda er varðar mögulegar afleiðingar þátttöku þarf að auka til muna. Með því er hugsanlega hægt að sporna gegn þeim andlegu og líkamlegu kvillum sem tekið hafa sér bólfestu hjá keppendum í greininni. Lykilorð; Fitness, mataræði, æfingamagn, andleg áhrif, líkamleg áhrif, ólögleg lyfjanotkun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Sigurður Heiðar Höskuldsson 1985-
  • Sigurður Kristján Nikulásson 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9239
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9239

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigurður Heiðar Höskuldsson 1985-; Sigurður Kristján Nikulásson 1987-. Áhrif þátttöku kvenna í Fitness á andlega og líkamlega heilsu þeirra. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9239