Back to results

Reykjavík University

Tilkynningarskylda samkvæmt barnaverndarlögum nr. 80/2002

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er fjallað um tilkynningarskyldu samkvæmt barnaverndarlögum og ítarlega gerð grein fyrir hverju ákvæði fyrir sig. Í því samhengi er fjallað um uppruna barnaverndarlaga, Barnasáttmálann og starfsemi barnaverndaryfirvalda. Greint er frá ástæðum þess að tilkynningarskylda stofnast og fjallað ítarlega um hverja ástæðu. Réttarstaðan á Íslandi er stuttlega borin saman við Norðurlönd, og leiðir í ljós að tilkynningarskyldan hér á landi er einna víðtækust. Fjallað er um regluna um nafnleynd tilkynnanda samkvæmt barnaverndarlögum og mikilvægi þeirrar reglu fyrir virkni barnaverndarstarfsemi hér á landi. Farið er í verklagsreglur um tilkynningarskyldu fagaðila sem starfa með börnum og heilbrigðisstarfsmanna ásamt því að fjalla um siðareglur tilkynningarskyldra aðila. Greint er frá trúnaðarskyldu fagaðila sem hafa afskipti af börnum og hvernig reglan vegast á við tilkynningarskyldu fagaðila, en trúnaðarskyldan kemur fram í flestum siðareglum og lögum tilkynningarskyldra aðila. Greint er frá því hvaða atriði aftri einstaklingum frá því að tilkynna og hvaða ástæða geti legið þar að baki. Greint er frá fjölda tilkynninga sem bárust á tímabilinu 2005 til 2009 og fyrstu níu mánuði ársins 2010, meðal annars í því skyni að sjá hverjir tilkynni oftast og afhverju. Samanburður á fjölda tilkynninga á fyrrgreindu fimm ára tímabili leiðir í ljós að tilkynningum fer mjög fjölgandi milli ára, en ljóst er að það er ekki vegna fólksfjölgunar á landinu. Lögregla er sá tilkynningarskyldi aðili sem tilkynnir oftast á þessu tímabili. Auk þess má sjá að margar tilkynningar lögreglu leiða ekki til könnunar máls. Ekki er skýrt hvaða ástæður liggja að baki þess að lögregla tilkynnir oftast, ein skýring gæti verið sú að vinnubrögð lögreglu leiða til þess að of smávægileg tilvik eru tilkynnt auk þess sem ákvæði barnaverndarlaga um tilkynningarskyldu lögreglu er afar víðtækt. Vanræksla á tilkynningarskyldu á sér ýmsar skýringar svo sem regluna um trúnaðarskyldu, óöryggi tilkynningarskyldra aðila eða hræðslu við að nafnleynd verði aflétt.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Áslaug Heiða Gunnarsdóttir 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7475
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7475

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Áslaug Heiða Gunnarsdóttir 1983-. Tilkynningarskylda samkvæmt barnaverndarlögum nr. 80/2002. 2011. http://hdl.handle.net/1946/7475