Back to results

Reykjavík University

Eignarráð landeiganda sjávarjarða að auðlindum innan netlaga

Abstract

dc:description.abstract

Eignarráð landeiganda sjávarjarða að auðlindum innan netlaga - Úrdráttur Í ritgerð þessari er fjallað um eignarráð landeiganda að auðlindum innan netlaga. Fjallað verður sérstaklega um afmörkun jarða til sjávar, hvaða auðlindir er að finna innan netlaga, hvernig eignarráðum landeiganda er háttað og með hvaða hætti eignarráðum landeiganda eru sett takmörk að lögum. Markmið umfjöllunarinnar er að taka saman þær réttarreglur íslensks réttar sem gilda um eignarráð landeiganda yfir auðlindum innan netlaga. Í ritgerðinni er fjallað um afmörkun netlaga og með hvaða hætti afmörkun þeirra er háttað í íslenskum rétti. Fjallað er um hugtakið auðlind og hvað geti fallið þar undir. Eignarráð landeiganda eru gerð skil og sérstaklega fjallað um hvort landeigandi njóti sömu eignarráða yfir netlögum eins og hann nýtur yfir fasteign. Eignarráðum landeiganda yfir einstökum auðlindum er gerð skil þar sem rakin eru ákvæði laga sem fjalla um rétt landeiganda til nýtingar auðlinda innan netlaga og þær takmarkanir sem ákvæði laga setja landeiganda. Réttindi sem sérstaklega er fjallað um er fiskveiðiréttur, réttur til dýraveiði, hagnýting gróðurs, hagnýting jarðrænna auðlinda, nýting auðlinda til orkuvinnslu og nýting reka. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru að svæðið innan netlaga er hluti fasteignar og landeigandi á þar allar eignarheimildir, nema þær sem eru takmarkaðar af lögum. Landeigandi verður því ekki sviptur þeim auðlindum sem á fasteign hans finnast nema með greiðslu bóta. Löggjafanum er þó heimilt að takmarka verulega hagnýtingarrétt landeiganda án þess að bótaskylda stofnist.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Rebekka Hilmarsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7460
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7460

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Rebekka Hilmarsdóttir 1984-. Eignarráð landeiganda sjávarjarða að auðlindum innan netlaga. 2011. http://hdl.handle.net/1946/7460