Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerð þessari er fjallað um fíkniefnabrot. Meginviðfangsefni ritgerðarinnar fólst í könnun á dómum Hæstaréttar frá tímabilinu 1. janúar 2006 til 3. desember 2010. Auk þess þótti nauðsynlegt að taka einn umfangsmikinn héraðsdóm með í þá könnun. Mikilvægur þáttur ritgerðarinnar var einnig að kanna þá þætti sem geta haft áhrif á ákvörðun viðurlaga í fíkniefnamálum. Ýmsir þættir geta haft áhrif á þyngd refsingar, ýmist til refsihækkunar og/eða refsilækkunar, málsbóta og/eða refsiþyngingar, bæði lögmæltar og ólögmæltar ástæður. Framangreind atriði voru skoðuð meðal annars með tilliti til þeirra dóma sem gengu á könnunartímabilinu. Það sem helst hefur áhrif á ákvörðun refsingar í fíkniefnamálum er magn fíkniefna, styrkleiki þeirra og hættueiginleiki. Jafnframt getur hinn refsiverði verknaður skipt máli í því samhengi en nokkur munur virðist vera á fíkniefnalöggjöfinni varðandi hvaða verknaðaraðferðir er dæmt fyrir hverju sinni. Hvergi er hins vegar fjallað um framangreind atriði í fíkniefnalöggjöf hérlendis heldur má ráða slíkt mat úr dómaframkvæmd í samræmi við könnun dóma á framangreindu tímabili. Einnig virðist skipulögð brotastarfsemi sífellt meira vera að ryðja sér til rúms hérlendis, til að mynda með breyttu efnahagsástandi, aukinni alþjóðavæðingu og auðveldari aðgengi að landinu. Alþjóðleg lögreglusamvinna skiptir miklu máli í þeim efnum en skoðað var helsta samstarf á sviði löggæslu hérlendis í tengslum við fíkniefnamál. Auk framangreindra atriða þótti nauðsynlegt að fara yfir þróun fíkniefnalöggjafar á Íslandi og skoða þá alþjóðasamninga sem hafa það að markmiði að hindra fíkniefnabrot. Að lokum var stutt umfjöllun um þyngd refsinga í fíkniefnamálum, réttlætingu refsinga og varnaðaráhrif þeirra, áhrif refsivistar og önnur úrræði sem standa til boða í þeim efnum auk áhrifa fjölmiðla í tengslum við fíkniefnabrot.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sandra Dröfn Gylfadóttir 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/7448
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/7448