Reykjavík University
Framkvæmd vistunar barna utan heimilis á árunum 1992-2010 : málsmeðferðarreglur
Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerð þessari er ætlunin að rannsaka framkvæmd vistunar barna utan heimilis á árunum 1992-2010. Samkvæmt eldri barnaverndarlögum nr. 58/1992 var það barnaverndarnefnd sem úrskurðaði um vistunina og hægt var að skjóta úrskurðinum til barnaverndarráðs sem tók lokaákvörðun í málinu. Samkvæmt núgildandi barnaverndarlögum nr. 80/2002 er það barnaverndarnefnd sem tekur ákvörðun um vistun í styttri tíma en tvo mánuði en ef talið er að vistunin þurfi að vara í lengri tíma þarf að fara með málið fyrir héraðsdóm. Ætlunin er að rannsaka hvernig málsmeðferðarreglum barnaverndarlaga hefur verið framfylgt í málum er varða tímabundna vistun barna utan heimilis sem og forsjársviptingar. Verður lögð áhersla á að skoða rannsóknarregluna, meðalhófsregluna og andmælaréttinn. Einnig hvort sjáanlegt sé að dómstólar geri ríkari kröfur í dag til barnaverndarnefnda um að fylgja eftir málsmeðferðarreglunum en áður. Við skoðunina verða úrskurðir barnaverndarráðs á árunum 1992-2002 skoðaðir sem og allir héraðsdómar og Hæstaréttardómar á árunum 2002-2010 ásamt tveimur dómum frá árunum 1992-2002. Rannsóknin leiddi í ljós að reglurnar eru að jafnaði virtar eins og lög gera ráð fyrir, undantekningarnar eru fáar. Mesta áherslan virðist vera lögð á meðalhófsregluna. Aldur þeirra barna sem fá að tjá sig hefur almennt séð lækkað með tímanum og er nú að jafnaði miðað við að barnið sé tíu ára gamalt þó með nokkrum undantekningum. Dómstólar eru farnir að gera meiri kröfur til þess að börn fái að tjá sig sem sjá má á tveimur málum Hæstaréttar þar sem hann ómerkti úrskurð héraðsdóms vegna þess að afstaða barnsins lá ekki fyrir áður en úrskurður gekk. Í heildina litið eru því barnaverndarnefndir að fara eftir þeim reglum sem þeim eru settar sem oftast leiðir til þess að rétt niðurstaða fæst í málum sem til meðferðar eru.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Íris Erlingsdóttir 1978-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/6970
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/6970