Back to results

Reykjavík University

Rannsóknin á bankahruninu og rétturinn til að fella ekki á sig sök

Abstract

dc:description.abstract

Rétturinn til að fella ekki á sig sök er talinn felast í ákvæðum stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu um réttláta málsmeðferð. Rétturinn á ekki aðeins við í sakamálarannsókn heldur kemur hann einnig til álita við rannsókn mála á stjórnsýslustigi. Mörg þeirra mála, sem koma til rannsóknar vegna bankahrunsins, eru rannsökuð á stjórnsýslustigi áður en þau koma til sérstaks saksóknara. Álitaefnið er hvort og hvernig hægt er að nýta upplýsingar og/eða gögn sem aflað er við rannsókn utan refsivörslukerfis sem sönnunargögn í refsimáli síðar. Í ritgerðinni er í fyrsta lagi farið yfir dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu um réttinn til að fella ekki á sig sök. Í öðru lagi er könnuð réttarframkvæmd hér á landi og í þriðja lagi er athugað hvernig íslensk lagaákvæði samræmast túlkun Mannréttindadómstólsins. Mannréttindadómstóllinn hefur einkum talið að brotið sé gegn réttinum í tvenns konar tilvikum. Annars vegar á stjórnsýslustigi þegar maður, sem telst borinn sök um refsiverða háttsemi í skilningi 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmálans, er þvingaður til að veita upplýsingar sem gætu fellt á hann sök í refsimáli. Hins vegar í málum þar sem maður er beittur þvingun áður en grunur vaknar um refsiverða háttsemi og upplýsingar, sem fellt geta sök á hann, eru síðan notaðar gegn honum í refsimáli. Réttarstaðan er gjörólík hér á landi eftir því hvaða stjórnsýslustofnun fjallar um mál áður en það kemur til kasta sérstaks saksóknara. Að því er sumar stjórnsýslustofnanir varðar er ekki við nein lagaákvæði að styðjast um það hvort og þá hvernig hægt er að nýta upplýsingar sem aflað er á stjórnsýslustigi sem sönnunargögn í sakamáli síðar. Um aðrar stjórnsýslustofnanir gilda hins vegar ákvæði sem veita mun meiri vernd að þessu leyti en túlkun Mannréttindadómstólsins gefur tilefni til. Óvíst er hvaða áhrif þetta hefur á rannsókn mála sem tengjast bankahruninu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigríður Árnadóttir 1960-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/6916
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/6916

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigríður Árnadóttir 1960-. Rannsóknin á bankahruninu og rétturinn til að fella ekki á sig sök. 2010. http://hdl.handle.net/1946/6916