Reykjavík University
Attitudes of Key Stakeholders Towards the Icelandic High-Performance Center, with a Focus on Sport Psychology
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar var að kanna viðhorf lykilhagsmunaaðila til íslenskrar afreksmiðstöðvar með sérstaka áherslu á teymisvinnu, stoðþjónustu og íþróttasálfræði. Rannsóknin skoðaði einnig hvernig afreksíþróttafólk, þjálfarar, fulltrúar sérsambanda og meistaranemar í íþróttavísindum mátu mikilvægi fjölbreyttrar stoðþjónustu, sálfræðilegra málefna og fræðsluforma innan afreksíþrótta. Notast var við megindlega rannsóknaraðferð þar sem gögnum var safnað með rafrænum spurningalistum. Alls tóku 73 einstaklingar þátt í rannsókninni, þar af afreksíþróttafólk (n = 31), meistaranemar í íþróttafræði (n = 25), fulltrúar sérsambanda (n = 10) og þjálfarar (n = 7). Gögn voru greind með lýsandi tölfræði og Kruskal-Wallis H prófum. Niðurstöðurnar sýndu almennt jákvæð viðhorf til fjölþættrar stoðþjónustu innan afreksíþrótta. Íþróttasálfræði, sjúkraþjálfun og þjónusta tengd líkamlegri heilsu fengu hæsta skorið. Sálfræðileg málefni tengd frammistöðu, svo sem andleg seigla, sjálfstraust, svefn og streitustjórnun, voru einnig metin mjög mikilvæg. Þrátt fyrir jákvæð viðhorf til íþróttasálfræði fengu geðheilbrigðistengd málefni, svo sem átraskanir, fíkn, þunglyndi og kulnun, lægri einkunnir en frammistöðutengd málefni. Þetta gæti bent til þess að íþróttasálfræði sé enn fyrst og fremst tengd frammistöðuaukningu fremur en geðheilbrigði og almennri vellíðan í afreksíþróttum. Flestir þátttakendur sem höfðu nýtt sér sálfræðiþjónustu lýstu jákvæðri reynslu af henni. Helstu hindranir voru kostnaður, skortur á upplýsingum um aðgengi að þjónustunni og sú upplifun að þjónustan væri ekki nauðsynleg. Niðurstöðurnar styðja þróun samþættrar íslenskrar afreksmiðstöðvar með áherslu á þverfaglegt samstarf, fræðslu og aðgengilega íþróttasálfræðiþjónustu. Lykilorð: afreksíþróttir, íþróttasálfræði, stoðþjónusta fyrir íþróttafólk, viðhorf, þverfagleg stoðþjónusta, afreksíþróttafólk, Ísland
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Snædís Líf Pálmarsdóttir Dison 2000-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- en
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53756
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53756