Reykjavík University
Peningastefna Seðlabanka Íslands og íslenski hlutabréfamarkaðurinn : áhrif óvæntra stýrivaxtabreytinga á ávöxtun hlutabréfa á Íslandi
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er rannsakað áhrif óvæntra stýrivaxtabreytinga á ávöxtun hlutabréfa á Íslandi. Til að hægt sé að meta áhrifin á sem árangursríkastan hátt var gerð einföld aðhvarfsgreining sem innihélt líkan með og án verðbólgu. Einnig var gerð greining á áhrifum óvæntra og væntra stýrivaxtabreytinga og rannsakað hvaða stýrivaxtaákvarðanir virðast keyra viðbrögð hlutabréfamarkaðarins. Gerð var rannsókn á þróun óvæntra stýrivaxtabreytinga og áhrif þeirra á ávöxtun hlutabréfavísitölu á tímabilum fyrir og eftir heimsfaraldurinn Covid-19. Að auki var gerð greining þar sem metin voru áhrif alþjóðlegra markaðshreyfinga í samanburði við óvæntar stýrivaxtabreytingar og áhrif þeirra á ávöxtun íslenskra hlutabréfavísitölu. Í þeirri greiningu þá var notast við ávöxtun hlutabréfavísitölu S&P 500. Rannsóknartímabilið nær yfir 15 ár, frá 1. janúar 2010 til 31. desember 2025. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að áhrif óvæntra stýrivaxtabreytinga hafa sterk áhrif á ávöxtun íslenskra hlutabréfa og sama niðurstaða heldur sér þegar tekið er tillit til verðbólgu. Greining á tímabilum fyrir og eftir heimsfaraldurinn sýndu að á tímabilinu fyrir heimsfaraldurinn héldust áhrifin eins en á seinna tímabili misstu stuðlar greiningarinnar tölfræðilega marktækni sína. Það útskýrist af fáum athugunum fyrir seinna tímabilið sem náði yfir árin 2020-2025. Þegar ávöxtun hlutabréfavísitölu S&P 500 var tekin með í greiningunni þá misstu áhrif óvæntra stýrivaxtabreytinga tölfræðilega marktæki sína, þær niðurstöður benda til þess að íslenski hlutabréfamarkaðurinn hreyfist að einhverju leyti í takt við alþjóðlegar markaðshreyfingar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Dagmar Kaldal Ómarsdóttir 2003-
- Una Marín Guðlaugsdóttir 2002-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53690
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53690