Reykjavík University
„Hvað ef við hlustuðum?“ : kynbundið ofbeldi gegn fötluðum konum
Abstract
dc:description.abstractRitgerðin fjallar um kynbundið ofbeldi gegn fötluðum konum á Íslandi og hvernig íslenskt réttarkerfi og stefnumótun stjórnvalda bregðast við þeirri sérstöku berskjöldun sem leiðir af samspili kyns og fötlunar. Markmið rannsóknarinnar er að meta hvort íslensk löggjöf, framkvæmd og stuðningsúrræði samræmist skyldum samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF), Istanbúl-samningnum og öðrum alþjóðlegum mannréttindaskuldbindingum. Sérstök áhersla er lögð á fjölþætta mismunun fatlaðra kvenna, aðgang þeirra að réttinum og hvernig fötlun hefur áhrif á mat réttarvörslukerfisins á samþykki, trúverðugleika og verndarþörf. Rannsóknin byggir á lögfræðilegri aðferð þar sem stuðst er við greiningu laga, dómaframkvæmdar, lögskýringargagna, stefnumótunarskjala stjórnvalda og tilmæla alþjóðlegra eftirlitsnefnda. Þá er jafnframt byggt á viðtölum við sérfræðinga og lykilaðila innan réttarvörslukerfis og stuðningsþjónustu. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að fatlaðar konur séu að verulegu leyti ósýnilegar í íslensku réttarkerfi og stefnumótun gegn kynbundnu ofbeldi. Skortur er á samræmdri gagnasöfnun og skráningu, aðgengi að stuðnings- og verndarúrræðum er takmarkað og sérþekking innan réttarvörslukerfisins ófullnægjandi. Greining dóma sýnir jafnframt tilhneigingu til að leggja ríka áherslu á fötlun brotaþola við mat á samþykki, fremur en að leggja sjálfstætt mat á valdaójafnvægi, vilja brotaþola og háttsemi geranda. Ritgerðin leiðir að þeirri niðurstöðu að íslensk löggjöf og framkvæmd uppfylli enn ekki að fullu þær kröfur sem leiða af SRFF og Istanbúl-samningnum um vernd gegn ofbeldi, aðgang að réttinum og raunhæfa aðlögun úrræða. Nauðsynlegt sé að ráðast í markvissar úrbætur á sviði löggjafar, gagnasöfnunar, málsmeðferðar og stuðningsúrræða til að tryggja fötluðum konum raunhæfa og virka réttarvernd.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Aldís R. Ingólfsdóttir 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53646
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53646