Back to results

Reykjavík University

Æfingaálag og svefn : áhrif æfingaálags á svefn knattspyrnumanna

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort æfingaálag hefði áhrif á svefnlengd og svefngæði íslenskra knattspyrnumanna. Þá var sérstaklega leitast eftir hvort svefnlengd og svefngæði breyttust milli léttari og erfiðari æfingaviku. Þátttakendur voru 22 karlkyns knattspyrnumenn, 14 þeirra svöruðu spurningalistanum tvisvar sinnum og voru því notaðir í paraðan samanburð á æfingaálagi. 5 þátttakendur voru með fullnægjandi gögn fyrir svefnlengd á virkum dögum og 4 fyrir svefnlengd um helgar. 11 þáttakendur voru með fullnægjandi gögn fyrir svefngæði. Svefn var metinn með huglægu mati sem byggði á spurningalista sem studdist við Pittsburgh sleep quality index (PSQI) og Athlete sleep screening questionnaire (ASSQ). Æfingaálag var svo reiknað út frá lengd æfinga og leikja og skynjaðri áreynslu (RPE). Niðurstöður sýndu að æfingaálag var marktækt hærra í erfiðari æfingaviku samanborið við léttari æfingaviku, þær niðurstöður staðfesta skýran mun á álagi milli vikna. Ekki fannst marktækur munur á svefnlengd né svefngæðum milli vikna. Þrátt fyrir það var tilhneiging til styttri svefns og lakari svefngæða við aukið æfingaálag. Niðurstöður benda einnig til þess að fleiri þættir hafa áhrif á svefn heldur en æfingaálag. Út frá niðurstöðunum rannsóknarinnar má álykta að samband æfingaálags og svefns sé flókið og ólínulegt, þar sem svefn mótast af samspili margra þátta.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Óskar Örn Einarsson 1999-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53588
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53588

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Óskar Örn Einarsson 1999-. Æfingaálag og svefn : áhrif æfingaálags á svefn knattspyrnumanna. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53588