Back to results

Reykjavík University

Virkni eldri borgara : hvatar til áframhaldandi þátttöku í skipulagðri þjálfun

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvaða þættir hafa áhrif á áframhaldandi þátttöku eldri borgara í skipulagðri þjálfun. Sérstök áhersla var lögð á að skoða upplifun iðkenda af þátttöku í þjálfun hjá Virkni og Vellíðan í Kópavogi, þar á meðal hvaða ávinning þeir telja sig fá og hvaða þættir hafa áhrif á áframhaldandi þátttöku. Rannsóknin byggði á eigindlegri aðferðafræði þar sem tekin voru viðtöl við tíu eldri borgara sem taka þátt í skipulagðri þjálfun. Viðtölin voru tekin upp á síma og studdust við hálfstaðlaðan spurningalista sem innihélt 22 opnar spurningar. Markmiðið var að fá dýpri innsýn í reynslu, viðhorf og hvata þátttakenda. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að áframhaldandi þátttaka í skipulagðri þjálfun sé margþætt, þar sem félagslegir, líkamlegir og andlegir þættir fléttast saman. Félagsleg tengsl og gott samfélag reyndust hafa mest áhrif á áframhaldandi þátttöku þátttakenda, ásamt jákvæðri upplifun af líkamlegum og andlegum ávinningi þjálfunarinnar. Þátttakendur lýstu meðal annars auknu sjálfstæði, bættri líðan, meiri orku og aukinni félagslegri virkni í tengslum við reglulega þátttöku í þjálfun. Álykta má að félagslegt umhverfi, innri hvatar og upplifun eldri borgara af ávinningi hreyfingar séu lykilþættir í áframhaldandi þátttöku í skipulagðri þjálfun. Rannsóknin bendir jafnframt til þess að skipulögð þjálfun geti gegnt mikilvægu hlutverki í farsælli öldrun með því að stuðla að auknum lífsgæðum, reglufestu og félagslegri virkni eldri borgara.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Haukur Leifur Eiríksson 2002-
  • Gísli Martin Sigurðsson 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53565
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53565

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Haukur Leifur Eiríksson 2002-; Gísli Martin Sigurðsson 1998-. Virkni eldri borgara : hvatar til áframhaldandi þátttöku í skipulagðri þjálfun. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53565