Back to results

Reykjavík University

Restless Cycles : sleep Disturbances Across the Menstrual Cycle

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort að svefngæði og almenn vellíðan taki breytingum eftir mismunandi fösum tíðahrings hjá konum með reglulegan tíðahring. Notast var við innanhópasnið og var spurningalisti lagður fyrir þátttakendur í gegnum Microsoft Forms. Spurningalistinn var sendur til 42 kvenna (n=42), en af þeim svöruðu 16 konur (N=16) og mynduðu þannig úrtak þessarar rannsóknar. Spurningalistinn innihélt atriði þar sem þátttakendur lögðu mat á svefngæði, skap, orku, einbeitingu, kvíða og verki yfir mismunandi fasa tíðahringsins. Niðurstöður sýndu marktækan mun á svefngæðum á milli fasa tíðahrings, þar sem verri svefn var mældur á gulbússtigi og tíðafasa samanborið við eggbússtig. Einnig komu fram breytingar á vellíðan, meðal annars á skapi, orku, kvíða og verkjum, með merkjanlegum neikvæðari áhrifum á síðari hluta gulbússtigs og á tíðafasa. Þessar niðurstöður benda til þess að huglæg svefngæði og vellíðan geti breyst yfir tíðahringinn og undirstrikar þannig mögulegt hlutverk hormónasveiflna á vellíðan og daglega virkni kvenna. Niðurstöður lögðu áherslu á mikilvægi þess að taka mið af mismunandi fösum tíðahrings í rannsóknum og í klínísku samhengi sem tengjast svefni og vellíðan. Lykilorð: tíðahringur, svefngæði, vellíðan, hormónasveiflur, innanhópasnið

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Birta Magnúsdóttir 2002-
  • Dagmar Ósk Sigurðardóttir 2001-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 10

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53423
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53423

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Birta Magnúsdóttir 2002-; Dagmar Ósk Sigurðardóttir 2001-. Restless Cycles : sleep Disturbances Across the Menstrual Cycle. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53423