Back to results

Reykjavík University

Rammaáætlun : skilvirkni ferla við leyfisveitingar vegna orkutengdra verkefna metin með aðferðum straumlínustjórnunar (Lean Management)

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar er að greina skilvirkni og umbótatækifæri í leyfisferli rammaáætlunar sem hefur verið gagnrýnt fyrir að vera flókið, langt og kostnaðarsamt stjórnsýsluferli. Byggt er á fræðilegum grunni góðrar stjórnsýslu, verkefnastjórnsýslu og straumlínustjórnunar (e. Lean Management) þar sem átta tegundum Muda sóunar er notuð til að bera kennsl á óhagkvæmni í ferlinu. Rannsóknin byggir á könnun meðal hagaðilaferlisins. Alls svöruðu 31 þátttakandi könnuninni frá aðal hagaðilum ferlisins. Þeir eru leyfisumsækjendur, umsagnaraðilar og ákvörðunartakar. Niðurstöður sýna að sóun birtist í öllum átta Muda flokkum en gallar og biðtími voru metnir með mestu sóunina. Leyfisumsækjendur upplifa sóun mun oftar en aðrir hópar, um 60% þeirra telja hana koma oft eða mjög oft fram, samanborið við 37% ákvörðunartaka og 37% umsagnaraðila. Á hinn bóginn telja 43% ákvörðunartaka og 23% umsagnaraðila að sóun komi sjaldan eða nær aldrei fram sem bendir til mismunandi vægis hagsmuna og álags í ferlinu. Þrátt fyrir þetta eru þátttakendur almennt jákvæðir í garð nýrra virkjana sem gefur til kynna að gagnrýni beinist fyrst og fremst að framkvæmd ferlisins. Rannsóknin bendir til skýrra umbótatækifæra á ferli rammaáætlunar. Hægt væri að ná umbótum með því að einfalda verkflæði, skýra ábyrgðarskiptingar og auka stafræna umbreytingu til að draga úr sóun og stytta afgreiðslutíma.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sara Lind Sveinsdóttir 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52034
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52034

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sara Lind Sveinsdóttir 1996-. Rammaáætlun : skilvirkni ferla við leyfisveitingar vegna orkutengdra verkefna metin með aðferðum straumlínustjórnunar (Lean Management). 2026. https://hdl.handle.net/1946/52034