Back to results

Reykjavík University

Langt frá heimsins vígaslóð : netöryggi í ljósi þjóðaröryggis og varnarmála; alþjóðalög og Ísland

Abstract

dc:description.abstract

Ógnir við þjóðaröryggi eru ekki eingöngu bundnar við hefðbundnar hernaðarógnir. Hafa þær fært sig yfir í netheima. Í auknum mæli hafa óvinveitt ríki og aðilar tengdir þeim beitt netárásum gegn ríkjum og mikilvægum innviðum þeirra, til að nýta sér kerfislæga veikleika, grafa undan trausti og valda alþjóðlegum óstöðugleika. Netöryggi varðar því í senn þjóðaröryggi og varnarmál. Netárásir skapa því öryggisógnir og lagalegar áskoranir, bæði í þjóðarétti og landsrétti. Meginviðfangsefni þessarar ritgerðar er að greina hvernig netógnir í netheimum falla að alþjóðalögum, einkum reglunum um fullveldi, bann við valdbeitingu og íhlutun í innanríkismálefni ríkja. Einnig að meta hvernig íslensk lög taka á netógnum og hvort þau gefi traust lagaumhverfi til að gera Ísland í stakk búið að bregðast við netógnum og vernda eigið þjóðaröryggi. Fjallað er um helstu tegundir netógna þar sem lykilhugtök eru skilgreind. Þá er greint hvernig slíkar ógnir falla að alþjóðalögum, einkum Sáttmála Sameinuðu þjóðanna, og hvernig unnt er að tryggja ábyrgð ríkja í netheimum. Þá er fjallað um varnarbandalög og viðeigandi tilskipanir Evrópusambandsins um netöryggi. Loks er stjórnskipan og lagalegt umhverfi netöryggis á Íslandi metið, í ljósi þjóðaröryggis og varnarmála, í því skyni að leggja mat á viðbragðsgetu okkar við netógnum. Niðurstaðan er í fyrsta lagi sú að ákvæði Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um fullveldi, bann við valdbeitingu og íhlutun í innanríkismálefni, gilda um netárásir, en krefjist breyttrar túlkunar í takt við breytt öryggisumhverfi. Til að ríki beri ábyrgð á netárás verður þó að vera unnt að rekja hana til viðkomandi ríkis, sem getur verið vandkvæðum bundið í tæknilegu umhverfi. Í öðru lagi er umgjörð netöryggis á Íslandi, í ljósi þjóðaröryggis og varnarmála, afar dreifð milli stjórnvalda og stofnana. Skýra þarf valdheimildir stjórnvalda, samspil þeirra innbyrðis og við Alþingi, sem og að skilgreina þjóðaröryggisógnir og hvort netógnir falli þar undir. Skilvirkt og skýrt lagaumhverfi er forsenda árangursríkra viðbragða. Ísland þarf því að stíga markvissari skref í að tryggja netöryggi, sem er óaðskiljanlegur hluti þjóðaröryggis og varnarmála.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Katrín Sól Gunnarsdóttir 2001-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/51979
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/51979

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Katrín Sól Gunnarsdóttir 2001-. Langt frá heimsins vígaslóð : netöryggi í ljósi þjóðaröryggis og varnarmála; alþjóðalög og Ísland. 2026. https://hdl.handle.net/1946/51979