Back to results

Reykjavík University

Forsendur endurbóta og viðhalds mannvirkja sem snerta innivist og orkunotkun á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Þetta verkefni er hluti af alþjóðlega rannsóknarverkefninu RIAQ, styrkt af Northern Periphery and Arctic Programme og snýst um endurbætur íslenskra mannvirkja. Markmið rannsóknarinnar var að greina forsendur og hefðbundnar aðferðir í endurbótum og viðhaldi mannvirkja á Íslandi að mati fagmanna í byggingariðnaði, auk þess að taka fyrir eitt dæmi af húsi þar sem metin voru áhrif endurbóta á orkunotkun og loftgæði. Loftgæðin voru mæld á þremur stöðum í húsinu með ATMO Cube mæli, þar sem mælt var, koltvísýring, rokgjörn lífræn efnasambönd, svifryk, hitastig og rakastig. Orkuþörf hússins var reiknuð fyrir og eftir endurbætur. Niðurstöður sýndu að helstu ástæður endurbóta og viðhalds voru aldur byggingar og rakavandamál, en mestar framkvæmdir beindust að yfirborði byggingarhluta, svo sem klæðningu og gólfefnum. Þrátt fyrir að orkunýting hafi ekki verið aðalmarkmið, bendir rannsóknin til að hún sé oft bætt samhliða öðrum verkþáttum. Í húsadæminu reyndust loftgæðin að mestu undir viðmiðunarmörkum, þó með einstaka toppa. Vélræn loftræsing með 70 % varmaendurvinnslu hafði mest áhrif á bæði orkunýtingu og innivist.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Heiðdís Tinna Guðmundsdóttir 2002-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/51933
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/51933

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Heiðdís Tinna Guðmundsdóttir 2002-. Forsendur endurbóta og viðhalds mannvirkja sem snerta innivist og orkunotkun á Íslandi. 2026. https://hdl.handle.net/1946/51933