Reykjavík University
Hönnun skiptistöðvar við Krossmóa : hvaða útfærsla skiptistöðvar hentar best svo hún verði aðgengileg, örugg og samþætt við umhverfið
Abstract
dc:description.abstractSkiptistöðin við Krossmóa hefur staðið í núverandi mynd frá árinu 2013 og í tengslum við uppbyggingu Akademíureitsins skapast þörf á endurskoðun stöðvarinnar með það að markmiði að bæta flæði, aðkomu og þjónustu við farþega. Markmið verkefnisins er að þróa og meta hönnunartillögur að nýrri skiptistöð sem fellur að framtíðarskipulagi svæðisins og tryggir öryggar og aðgengilegar samgöngur fyrir alla notendahópa. Aðferðir fela í sér vettvangsferð, rýmis- og landmótunargreiningu, notkun akstursferla fyrir 12.4 metra og 15 metra vagna og samanburð tillagna útfrá aðgengi, öryggi og rýmisnýtingu. Einnig var stuðst við norska staðalinn N-V123 ásamt íslenskum leiðbeiningum um aðgengi fyrir alla og skipulag stoppistöðva. Fjórar útfærslur voru prófaðar og bornar saman til að greina styrkleika og veikleika og samþættingu við umhverfið. Niðurstöður sýna að rýmisnýting, skýrar gangleiðir og aðskilnaður farþega og vagna eru lykilatriði í hönnun skiptistöðvarinnar. Tillögur sem virtust framkvæmanlegar á teikningu reyndust óhentugar við Krossmóa, einkum þegar kom að rýmisnýtingu. Tillaga 4 reyndist uppfylla viðmið best, með skýrri skiptingu, stuttum gangleiðum og góðri tengingu við skipulag Akademíu reitsins. Tillagan skapar traustan grunn fyrir áframhaldandi hönnun og þróun skiptistöðvar við Krossmóa.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Einar Örn Andrésson 2000-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51929
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/51929