Reykjavík University
Lagaumhverfi íþrótta og umboðsmennsku í knattspyrnu. Reglugerð FIFA um umboðsmenn og tenging við Evrópurétt.
Abstract
dc:description.abstractHlutverk umboðsmanna er mikilvægt þegar kemur að félagaskiptum leikmanna og í því sambandi verður leitast við að skoða og greina hlutverk umboðsmanna og stöðu þeirra í valdapíramída knattspyrnunnar. Yfirskrift ritgerðarinnar er „Lagaumhverfi íþrótta og umboðsmennsku í knattspyrnu” þar sem fjallað er um reglugerð FIFA um umboðsmenn og tengingu við Evrópurétt. Í ritgerðinni er reynt að varpa ljósi á nýja reglugerð Alþjóða knattspyrnusambandsins og samspil hennar við Evrópurétt. Rannsóknarspurningin er eftirfarandi: Er launaþak FIFA er varðar þóknun til umboðsmanna lögmætt með hliðsjón af Evrópurétti? Litið verður til þróunar félagskiptareglna samhliða þróun umboðsmennsku í Evrópu á undanförnum árum. Skoðaðir verða stefnumarkandi dómar sem snerta regluverk íþrótta. Þá verða skoðuð ýmis álitamál m.a. er varða reglugerð enska knattspyrnusambandsins um umboðsmenn. Litið verður til þess hver sé staða reglugerða FIFA um umboðsmenn; Regulation on working with Intermediaries (RWWI) og FIFA Football Agents Regulations (FFAR) reglugerðanna. Fjallað verður sérstaklega um hina nýju reglugerð FIFA um umboðsmenn sem tók gildi í október 2023. Reglugerðardeilur verða skoðaðar og helstu niðurstöður varðandi nýju reglugerðina sem hafa komið fram í framhaldi af setningu hennar verða greindar. Litið verður til þess hvort að lögmætt sé af hálfu FIFA að setja á launaþak á þóknun til umboðsmanna og ályktanir þar að lútandi reifaðar. Helstu niðurstöður fela það í sér að með FFAR-reglugerðinni kveði við mun strangari tón varðandi skilyrði fyrir starfsemi umboðsmanna. Strangari reglur voru settar á starfsleyfi umboðsmanna, launaþak sett á umboðslaun og kvaðir settar á umboð þeirra varðandi þjónustu við leikmenn og félagslið. Umboðsmenn hafa ekki sætt sig við breytingarnar og í þeim dómsmálum sem hafa beinst að FFAR hafa dómar fallið gegn ákvæðum reglugerðarinnar í öllum tilvikum nema í úrskurði CAS. Þeir dómar hafa allir byggt á viðmiðum Meca-Medina dómsins. Það verður erfiðleikum bundið fyrir FIFA að réttlæta tilurð launaþaksins fyrir Evrópudómstólnum með hliðsjón af samkeppnisákvæðum TFEU.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Gunnar Steinn Gunnarsson 1996-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51108
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/51108