Back to results

Reykjavík University

Saknæm háttsemi í íþróttum : Afleiðing þess ef gengið er lengra en reglur leiksins heimila

Abstract

dc:description.abstract

Meginmarkmið ritgerðarinnar er að kanna mörkin milli lögmætrar og refsiverðrar háttsemi í íþróttum, með sérstakri áherslu á þær aðstæður þar sem þátttakandi veldur öðrum líkamstjóni. Í þessari umfjöllun er greint frá því hvernig íslensk refsilöggjöf, einkum ákvæði 217., 1. mgr., 218. og 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, getur átt við í íþróttalegu samhengi. Þrátt fyrir að leikmenn gangist undir samþykkta áhættu með þátttöku sinni er sú áhætta ekki skilyrðislaus. Í ritgerðinni er greint á milli ásetnings og gáleysis og sérstaklega litið til þess hvenær hegðun þátttakanda fer út fyrir eðlilegan ramma viðkomandi íþróttar og verður þar af leiðandi refsinæm. Sérstaklega er litið til þriggja keppnisíþrótta, þ.e. íshokkí, knattspyrnu og körfuknattleiks. Þessar íþróttagreinar hafa mismunandi reglur, átök milli leikmanna og hefðir, sem hafa áhrif á mat á því hvað telst eðlileg áhætta og hvenær hegðun verður ófyrirsjáanleg eða óásættanleg. Niðurstöður ritgerðarinnar benda til þess að þátttakendur í íþróttum samþykki með þátttöku sinni ákveðna almenna áhættu á meiðslum sem fylgir eðlilegum leik. Dómstólar meti ábyrgð íþróttamanna út frá heildstæðu mati á aðstæðum, þ.e. hvort háttsemin beindist persónulega gagnvart brotaþola, hversu alvarleg meiðslin af völdum háttseminnar voru og hvort háttsemin var í eðlilegum tilgangi leiksins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Styrmir Steinn Maack 2000-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50886
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50886

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Styrmir Steinn Maack 2000-. Saknæm háttsemi í íþróttum : Afleiðing þess ef gengið er lengra en reglur leiksins heimila. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50886