Back to results

Reykjavík University

Samskipti í fimleikum : áhrif þeirra á áhugahvöt og vellíðan

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni rannsóknarinnar var að kanna hvort samskipti milli þjálfara og iðkenda hafi áhrif á innri áhugahvöt og vellíðan kvenna sem æfa hópfimleika. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á gæði samskipta og hvernig þau móta upplifun iðkenda innan íþróttagreinar sem krefst náinnar samvinnu. Rannsóknin var lýsandi þversniðsrannsókn og byggir á megindlegri aðferðafræði. Notast var við rafrænan spurningalista sem byggður var á stöðluðum mælitækjum (CART-Q og CBQ), aðlöguðum að hópfimleikum. Þátttakendur voru 12 konur á aldrinum 16-21 ársí meistaraflokki hjá fimleikafélaginu Gerplu. Helstu niðurstöður voru að innri áhugahvöt, svo sem ánægja, sjálfsþroski og tengsl við liðsfélaga, vega þyngra en ytri hvatar. Jákvæð samskipti tengdust sterkari innri hvatningu, en neikvæð samskipti höfðu mest áhrif á sjálfstraust og löngun til að mæta á æfingar. Einnig kom fram að þátttakendur treystu þjálfaranum frekar í líkamlegum aðstæðum en þegar kom að andlegri vellíðan. Meginályktun rannsóknarinnar er sú að árangursrík og meðvituð samskipti séu lykilatriði í að efla innri áhugahvöt og vellíðan iðkenda í hópfimleikum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Erika Eik Antonsdóttir 2003-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50547
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50547

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Erika Eik Antonsdóttir 2003-. Samskipti í fimleikum : áhrif þeirra á áhugahvöt og vellíðan. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50547