Reykjavík University
Áhrif liðleika og styrks í aftanálærisvöðvum á ökklameiðsl í hópfimleikum
Abstract
dc:description.abstractTilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvort samband væri á milli styrks og liðleika í aftanálærisvöðvum og tíðni ökklameiðsla meðal hópfimleikafólks í meistaraflokki. Aðferð: Þátttakendur voru 22 hópfimleikaiðkendur (16 konur, 6 karlar) á aldrinum 18 til 34 ára úr meistaraflokki Stjörnunnar. Mældur var liðleiki í aftanálærisvöðvum með Sit-and-Reach prófi og styrkur var mældur með NordBord tæki. Gögnin voru unnin í SPSS og Excel og metin með lýsandi tölfræði og Pearson fylgnigreiningu. Niðurstöður: Marktækt jákvætt samband fannst milli styrks í aftanálærisvöðvum og fjölda snúninga á ökkla fyrir bæði vinstri (r = 0,518; p = 0,016) og hægri fót (r = 0,511; p = 0,16). Mjög sterk fylgni var á milli styrks í vinstri og hægri fæti (r = 0,954) en mjög veik ómarktæk fylgni var á milli liðleika og fjöldasnúninga á ökkla (r = 0,096; p = 0,671). Umræður: Þrátt fyrir að aukinn styrkur sé oft tengdur við minni meiðslahættu benda niðurstöður til þess að sterkari einstaklingur sé líklegri til að hafa upplifað fleiri snúninga á ökkla. Þetta gæti stafað af meiri ákefð eða krefjandi æfingum. Liðleiki samkvæmt Sit-and-Reach prófinu virðist ekki tengjast ökklameiðslum. Þessar niðurstöður undirstrika mikilvægi þess að leggja áherslu á hreyfistjórnun og stöðugleika samhliða styrktarþjálfun. Frekari rannsóknir með stærra úrtaki og lengri eftirfylgni eru nauðsynlegar til að skýra orsakasambönd.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Inga Lilja Ingadóttir 2002-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50532
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/50532