Reykjavík University
Meginreglan um opinbera málsmeðferð : hvernig hafa dómstólar beitt reglunni um opinbera málsmeðferð í sakamálum? Er tilefni til breytinga?
Abstract
dc:description.abstractMeginreglan um opinbera málsmeðferð – Hvernig hafa dómstólar beitt reglunni um opinbera málsmeðferð í sakamálum? er tilefni til breytinga? Meginreglan um opinbera málsmeðferð er ein af þeim grundvallarreglum sem gilda um meðferð mála fyrir dómi, sbr. 70. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu (MSE). Í ritgerð þessari ritgerð er fjallað um áherslu og framkvæmd reglunnar við meðferð sakamála og er nánari útfærsla á reglunni að finna í 1. mgr. 10. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 (sml.). Reglan felur í sér að þinghöld skulu háð í heyranda hljóði, nema veigamiklar ástæður gefi leyfi til undantekninga, sem sjá má í a-g. liðum 1. mgr. 10. gr. sml. Tilgangur reglunnar er að tryggja réttaröryggi þeirra sem aðild eiga að dómsmálum, sem og að almenningur eigi kost á að fylgjast með störfum dómstóla og þannig veitt dómstólum aðhald. Jafnframt er lögð áhersla á frelsi almennings og fjölmiðla til að greina frá því sem fram kemur í þinghöldum. Markmið rannsóknarinnar var að svara því hvernig dómstólar hér á landi hafa túlkað regluna og hvort þörf sé á breytingum. Í því skyni var gildandi réttur og framkvæmd hér á landi skoðuð og borin saman við löggjöf og framkvæmd í Danmörku og Noregi. Auk þess var fengið viðhorf dómara, brotaþola, sakbornings og fjölmiðlamanns varðandi framkvæmd reglunnar. Niðurstaða rannsóknarinnar er sú að dómstólar virða rétt til opinberrar málsmeðferðar nema í undantekningartilfellum hér á landi. Aftur á móti er tilhneiging til að loka þinghöldum ríkari hér en í samanburðarlöndum. Loks var það niðurstaða höfundar að tilefni væri að festa í sessi reglur til að tryggja enn betur rétt fjölmiðla og brotaþola að reglunni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Trausti Örn Þórðarson 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/48672
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/48672