Reykjavík University
Réttindi barna og þvingunarúrræði í barnavernd : heimildir barnaverndarlaga til beitingar þvingunar gagnvart börnum
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er leitast eftir því að kanna hvort heimild barnaverndarlaga um beitingu þvingana sé nægilega skýr og að hún samræmist þeim réttindum sem börn eiga að njóta. Réttindi barna eru vernduð á alþjóðlegum vettvangi enda er um viðkvæman hóp einstaklinga að ræða. Baráttan um réttindi barna á sér langan undanfara og tóku þau miklum breytingum við samþykkt Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins. Því var lögð áhersla á það í ritgerðinni að fjalla um helstu grundvallarréttindi barna. Barnaverndarlög nr. 80/2002, kveða á um rétt barna til verndar og umönnunar. Í 82. gr. barnaverndarlaga er síðan að finna ákvæði sem kveður á um heimild til að beita börn þvingunum og á ákvæðið rætur að rekja til norskra barnaverndarlaga. Í ritgerðinni er því varpað ljósi á ólíkar heimildir til beitingar þvingana gagnvart mismunandi hópum einstaklinga í viðkvæmri stöðu. Þar sem megintilgangur ritgerðarinnar er að meta skýrleika ákvæðisins um framkvæmd beitingar þvingana, var því fjallað um helstu meginreglur norskra barnaverndarlaga og gerður samanburður við íslensku lögin. Í niðurstöðum ritgerðarinnar kemst höfundur að þeirri niðurstöðu að þörf sé á úrbótum hvað varðar ákvæði barnaverndarlaga sem heimila beitingu þvingana. Að mati höfundar er heimildin til beitingar þvingana í barnaverndarlögum of matskennd, en sú ályktun er aðallega dregin af nýlegum breytingum á norskum barnaverndarlögum. Þá er brýnt að sett verði reglugerð um framkvæmd beitingu þvingana eins og barnaverndarlög gera ráð fyrir. Þá væri hægt að gera enn betur og setja sérlög líkt og eru til staðar í Svíþjóð um framkvæmd þvingana.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Valdís Ósk Óladóttir 1998-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/47413
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/47413