Back to results

Reykjavík University

Hvenær ber útgefanda fjármálagerninga að birta innherjaupplýsingar? : fyrirhugaðar breytingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik og áhrif þeirra á útgefendur og fjárfesta.

Abstract

dc:description.abstract

Innan Evrópusambandsins eru nú í farvatninu breytingar á reglum reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 (MAR) um skyldu útgefanda fjármálagerninga til að birta innherjaupplýsingar. Markmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á umræddar breytingar, tilefni þeirra, inntak og áhrif á útgefendur og fjárfesta. Verðbréfamarkaðir Evrópusambandsins hafa undanfarinn áratug átt erfitt uppdráttar í samkeppni sinni við önnur stærri markaðssvæði og hafa verið sagðir vanþróaðir í þeim samanburði. Þar er einna helst sagt eiga sök regluverk sambandsins um verðbréfamarkaði, sem leggi of þungar byrðar á útgefendur með þeim afleiðingum að félög sækist síður eftir skráningu eða eftir atvikum kjósi að afskrá sig af markaði. Þar á meðal hefur verið bent á að skylda útgefanda til að birta innherjaupplýsingar samkvæmt MAR sé of víðtæk. Ákvæði reglugerðarinnar þar að lútandi hafi í för með sér réttaróvissu fyrir útgefendur um hvaða upplýsingar teljist til tilkynningarskyldra upplýsinga og stuðli að því að ótímabærar eða jafnvel villandi upplýsingar séu birtar markaðinum. Fyrirhugðum breytingum á MAR er ætlað að bregðast við framangreindu og mæla í því skyni fyrir um að í langvarandi ferli skuli aðeins birta upplýsingar í tengslum við þann atburð sem ætlað er að ljúka ferlinu, eftir að sá atburður hefur átt sér stað. Felur þetta í sér talsverðar breytingar frá núgildandi rétti þar sem tilkynningarskyldar innherjaupplýsingar geta myndast í langvarandi ferli jafnvel þótt umtalsverð óvissa sé um hvort að viðkomandi aðstæður eða atburður gangi eftir. Álykta má að breytingarnar – verði þær að veruleika – komi til með að auka réttarvissu um hvenær tilkynningarskyldar innherjaupplýsingar liggja fyrir, létta á kostnaði útgefenda og hlúa betur að lögmætum hagsmunum þeirra. Ekki verður annað séð en að breytingunum takist þetta án þess að stofna markmiðum um samhverfu í dreifingu upplýsinga og fjárfestavernd í hættu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Breki Þór Borgarsson 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/47404
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/47404

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Breki Þór Borgarsson 1998-. Hvenær ber útgefanda fjármálagerninga að birta innherjaupplýsingar? : fyrirhugaðar breytingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik og áhrif þeirra á útgefendur og fjárfesta.. 2024. http://hdl.handle.net/1946/47404