Reykjavík University
Hvenær ber útgefanda fjármálagerninga að birta innherjaupplýsingar? : fyrirhugaðar breytingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik og áhrif þeirra á útgefendur og fjárfesta.
Abstract
dc:description.abstractInnan Evrópusambandsins eru nú í farvatninu breytingar á reglum reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 (MAR) um skyldu útgefanda fjármálagerninga til að birta innherjaupplýsingar. Markmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á umræddar breytingar, tilefni þeirra, inntak og áhrif á útgefendur og fjárfesta. Verðbréfamarkaðir Evrópusambandsins hafa undanfarinn áratug átt erfitt uppdráttar í samkeppni sinni við önnur stærri markaðssvæði og hafa verið sagðir vanþróaðir í þeim samanburði. Þar er einna helst sagt eiga sök regluverk sambandsins um verðbréfamarkaði, sem leggi of þungar byrðar á útgefendur með þeim afleiðingum að félög sækist síður eftir skráningu eða eftir atvikum kjósi að afskrá sig af markaði. Þar á meðal hefur verið bent á að skylda útgefanda til að birta innherjaupplýsingar samkvæmt MAR sé of víðtæk. Ákvæði reglugerðarinnar þar að lútandi hafi í för með sér réttaróvissu fyrir útgefendur um hvaða upplýsingar teljist til tilkynningarskyldra upplýsinga og stuðli að því að ótímabærar eða jafnvel villandi upplýsingar séu birtar markaðinum. Fyrirhugðum breytingum á MAR er ætlað að bregðast við framangreindu og mæla í því skyni fyrir um að í langvarandi ferli skuli aðeins birta upplýsingar í tengslum við þann atburð sem ætlað er að ljúka ferlinu, eftir að sá atburður hefur átt sér stað. Felur þetta í sér talsverðar breytingar frá núgildandi rétti þar sem tilkynningarskyldar innherjaupplýsingar geta myndast í langvarandi ferli jafnvel þótt umtalsverð óvissa sé um hvort að viðkomandi aðstæður eða atburður gangi eftir. Álykta má að breytingarnar – verði þær að veruleika – komi til með að auka réttarvissu um hvenær tilkynningarskyldar innherjaupplýsingar liggja fyrir, létta á kostnaði útgefenda og hlúa betur að lögmætum hagsmunum þeirra. Ekki verður annað séð en að breytingunum takist þetta án þess að stofna markmiðum um samhverfu í dreifingu upplýsinga og fjárfestavernd í hættu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Breki Þór Borgarsson 1998-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/47404
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/47404