Back to results

Reykjavík University

Mikilvægi stefnumótunar í yngri flokka þjálfun í fótbolta

Abstract

dc:description.abstract

Rannsókn þessi snýst um þjálfun í yngri flokkum í fótbolta og hvað „minni félög“ utan að landi geta gert til að styðja við sína leikmenn svo þeir nái markmiðum sínum í íþróttinni. Hvort sem það sé að spila í Bestu deildinni, spila erlendis eða eiga farsælan feril á sínum forsendum. Farið er yfir þjálfunaraðferðir sem félög á landinu hafa notað lengi og hvað landsliðsþjálfarar hafa að segja í þessum málum. Níu einstaklingar sem tengjast fótbolta voru teknir í viðtal. Þrír mismunandi viðtalsrammar voru gerðir en þeir innihéldu svipaðar spurningar sem þó var lítillega breytt eftir því starfi sem einstaklingur sinnir innan íþróttarinnar. Tilgangur rannsóknarinnar er að sjá hvað sé hægt að gera meðal annars út frá stefnu félaga og þjálfunaraðferðum til þess að leikmenn félagsins geti náð árangri. Niðurstöður leiddu í ljós að tækniþjálfun og það að skapa skemmtilegt umhverfi skiptir mestu máli. Þjálfarar vilja að krakkar fái margar snertingar á boltann á æfingum og að þau öðlist viljann til að vera með boltann. Gleði er lykilpartur í þjálfun barna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Pálmi Þór Jónasson 1999-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44947
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44947

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Pálmi Þór Jónasson 1999-. Mikilvægi stefnumótunar í yngri flokka þjálfun í fótbolta. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44947