Back to results

Reykjavík University

Réttarstaða aðila við lok lóðarleigusamnings : hvað verður um mannvirki leigutaka?

Abstract

dc:description.abstract

Réttarstaða aðila við lok lóðarleigusamnings. Hvað verður um mannvirki leigutaka? Viðfangsefni ritgerðarinnar snýr að lóðarleigusamningum á Íslandi. Farið verður yfir allt ferlið, frá stofnun samnings og þar til hann hefur þjónað tilgangi sínum. Einnig verður fjallað um réttarheimildir tengdar viðfangsefninu, en þær eru af skornum skammti hér á landi. Skoðuð verða sérstaklega þau álit sem geta komið upp hjá leigutaka, þegar lóðarleigusamningurinn hefur runnið sitt skeið. Fjallað verður um úrræði leigutaka gagnvart leigusala, ef til þess kemur að lóðarleigusamningurinn verði ekki endurnýjaður og þá m.t.t. þeirra mannvirkja sem á lóðinni standa. Þá verður fjallað um þau úrræði sem leigusali getur gripið til, ef hann hyggst ekki láta mannvirkið standa áfram á landareign sinni. Höfundur kannaði og bar saman mismunandi samningsákvæði hjá 10 mismunandi sveitarfélögum, með það að markmiði að kanna hvort þar væri að finna ákvæði sem skyldaði sveitarfélagið til að kaupa þau mannvirki sem á lóðinni stæðu við lok samningstímans. Með því fékk höfundur einn eldri samning og einn nýjan samning frá hverju sveitarfélaganna til samanburðar. Í lang flestum tilfellum var að finna ákvæði um kaupskyldu sveitarfélaganna á þeim mannvirkjum sem stóðu á lóðunum, ef til þess kæmi, að samningarnir væru ekki endurnýjaðir, sem tryggir réttarstöðu leigutaka að miklu leyti. Það breytir því þó ekki, að réttarstaða aðila við lok samningstíma er ekki tryggð á grundvelli laga, heldur ræðst hún að öllu leyti á grundvelli samningsins. Þau mannvirki sem á lóðinni standa eru oftar en ekki metin á tugi milljóna. Þessir fjármunir geta glatast ef ekki er samið um annað. Höfundur komst að þeirri niðurstöðu að réttarstaða aðila við lok lóðarleigusamnings sé ekki nægilega trygg og mikil þörf sé á heildstæðum lagaramma sem tryggir stöðu þeirra betur, því um mikla fjármuni er að ræða sem snerta lang flesta fasteignaeigendur hér á landi. Það verður að tryggja með lögum, en ekki einhliða samningsákvæðum landeiganda.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Stefán Þórarinsson 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44376
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44376

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Stefán Þórarinsson 1988-. Réttarstaða aðila við lok lóðarleigusamnings : hvað verður um mannvirki leigutaka?. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44376