Back to results

Reykjavík University

Kostnaðaráætlanir hjá Vegagerðinni : aðferðir til að áætla ófyrirséðan kostnað eftir hönnunarstigum

Abstract

dc:description.abstract

Í rannsókn þessari verða skoðaðar kostnaðaráætlanir hjá Vegagerðinni, en rannsóknir hafa leitt það í ljós að opinber verkefni eiga það til að fara fram úr kostnaðaráætlunum. Rannsóknir á samgöngumannvirkjum hafa sýnt að allt að 9 af hverjum 10 kostnaðaráætlunum verkefna fara fram úr áætlun og er skýringin oft á tíðum talin vera ofurbjartsýni á verkefnin og gerðar eru óraunhæfar áætlanir. Í verkefninu verða eftirfarandi atriði tekin fyrir: • Kostnaðaráætlanir á mismunandi hönnunarstigum voru skoðaðar og gerð grein fyrir hversu mikil framúrkeyrsla er í verkefnum Vegagerðarinnar eftir þeim. • Hvernig kostnaður á samgönguáætlun þróast með tíma, frá upphafi hönnunar til verkframkvæmda. • Aðferðir til að áætla ófyrirséðan kostnað í verkefnum og gerð tillaga að samræmingu verklags á öllum hönnunarstigum Vegagerðarinnar. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að almennt eru kostnaðaráætlanir fyrir verkhönnun nokkuð góðar, þrátt fyrir að hátt hlutfall verkefna fari yfir kostnaðaráætlun þá er meðaltal yfirkeyrslu ekki mjög hátt. Hins vegar eru kostnaðaráætlanir fyrir frumdrög ekki nógu góðar og mikil tækifæri til úrbóta þar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Birgitta Rán Ásgeirsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43306
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43306

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Birgitta Rán Ásgeirsdóttir 1987-. Kostnaðaráætlanir hjá Vegagerðinni : aðferðir til að áætla ófyrirséðan kostnað eftir hönnunarstigum. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43306