Reykjavík University
The effects of exercise are larger than physical activity on obstructive sleep apnea severity
Abstract
dc:description.abstractKæfisvefn er vaxandi samfélagslegt vandamál og hefur áhrif á lífsgæði einstaklinga sem þjást af sjúkdómnum. Almenn hreyfing og skipulögð hreyfing hafa verið viðurkenndar sem leiðir til að minnka áhrif og alvarleika kæfisvefns. Hins vegar, hafa fyrri rannsóknir notast við hugtökin almenn hreyfing og skipulögð hreyfing sem eitt hugtak en þau hafa ólíka meiningu. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hvort að almenn- eða skipulögð hreyfing hefði sterkara samband við alvarleika kæfisvefns. Þessi rannsókn stóð yfir í 12 vikur á 65 fullorðnum Íslendingum með mis alvarlegan kæfisvefn. Meðalaldur var 47.9 ár og 52% þátttakenda voru konur. Alþjóðlegi spurningalistinn um hreyfingu (International Physical Activity Questionnaire, IPAQ) var notaður og veitti annars vegar upplýsingar um almenna hreyfingu og hins vegar skipulagða hreyfingu þátttakenda og hlutlæg svefnmæling fyrir kæfisvefnsgreininguna. Líkamsþyngdarstuðull þátttakenda var mældur í byrjun og lok rannsóknarinnar. Niðurstöður sýndu ómarktækt samband bæði milli almennrar- og skipulagðrar hreyfingar við alvarleika kæfisvefns. Hins vegar, þegar aðlagað var fyrir kyni, aldri og líkamsþyngdarstuðli, hafði skipulögð hreyfing sterkara viðbótarspágildi við miðlungs/alvarlegann kæfisvefn heldur en almenn hreyfing. Ályktað var að skipulögð hreyfing hafi sterkara samband við alvarleika kæfisvefns heldur en almenn hreyfing. Lykilorð: Svefn, almenn hreyfing, skipulögð hreyfing, kæfisvefn, líkamsþyngdarstuðull
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Steinunn Anna Svansdóttir 1998-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn í Reykjavík
Subjects
dc:subject × 10Rights
- Language dc:language.iso
- en
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/42132
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/42132